ENSK2LS05 – Enska

Námsgrein: Enska

Heiti
Enska - lestur, skilningur, orðaforði og málfræði
Þrep
2
Einingafjöldi
5
Undanfari
B eða hærra í ensku á grunnskólaprófi
Í boði
Haust

Í áfanganum er lögð áhersla á lestur og undirstöðuatriði enskrar málfræði með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur þjálfast í að tileinka sér grunnorðaforða vísinda og fræða (academic vocabulary), tjá sig í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Unnið verður með lýðræðis- og mannréttindavitund og áhersla er lögð á sköpun í verkefnavinnu nemenda.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • fjölbreyttum orðaforða til markvissrar notkunar í frekara námi og starfi
  • almennum málfræðireglum
  • nytsemi orðabóka

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa og greina fjölbreytta texta
  • nota rafrænar orðabækur og viðeigandi hjálpargögn
  • tjá kunnáttu sína munnlega og skriflega á góðu máli
  • nýta stafræna tækni til sköpunar og miðlunar verkefna

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • lesa fjölbreytta texta sér til gagns og gamans
  • skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
  • nota nýjan orðaforða í ræðu og riti
  • verða sjálfbjarga í upplýsingaöflun og úrvinnslu upplýsinga á ensku
  • nota stafræna tækni til að miðla upplýsingum og tjá sig á skapandi hátt

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum. Áhersla er lögð á skapandi verkefnavinnu og nýtingu stafrænnar tækni.