Í áfanganum er lögð áhersla á að auka orðaforða og lesskilning nemenda. Unnið verður með lestur, tjáningu, hlustun og ritun til að auka skilning og máltilfinningu. Farið verður skipulega í grunnþætti enskrar málfræði. Verkefni verða aðlöguð og endurskoðuð eftir þörfum nemenda.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnþáttum enskrar málfræði
- mæltu máli á enska tungu
- einföldum textum
- notkun ensks talmáls
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa einfaldan texta
- skrifa einfaldan en málfræðilega réttan texta
- skilja enskt talmál
- tjá sig munnlega á einföldu ensku máli
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig á einfaldan hátt á ensku í ræðu og riti
- lesa sér til gagns og gamans
- skrifa einfaldan texta
- taka virkan þátt í samtölum á ensku
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem verkefni og vinna nemenda eru metin jafnt og þétt.