Í áfanganum er fjallað um undirstöðuatriði félagsfræðinnar ásamt lykil atburðum sem hafa haft áhrif á þjóðfélags- og iðnbyltingar, hagnýtt gildi félagsfræðinnar og helstu frumkvöðla hennar. Farið verður yfir nútímaleg áhrif samfélagsmiðla á einstaklinga t.d. áhrif þeirra á samskipti ásamt kostum þeirra og göllum. Einnig er fjallað um félagsleg festi, hlutverk mismunandi stofnana í samfélaginu, samfélagsleg áhrif á sjálfsmynd og ólíkar þarfir einstaklinga. Fjallað er um ólíka menningu, áhrif menningar á einstaklinga, félagsmótun, félagsleg viðmið, fjölmiðla og áhrif þeirra, helstu trúarbrögð í heiminum, rannsóknaraðferðir félagsvísinda. Auk þess er fjallað um almenn atriði tengt stjórnmálum, fjölbreyttan vinnumarkað og áhrif vinnunnar á líf einstaklinga.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lykilatriðum sem hafa haft áhrif á samfélagsmótun nútímans þ.e. áhrif þjóðfélags- og iðnbyltinga
- hagnýtu gildi félagsfræðinnar og frumkvöðlum hennar
- nútímalegum áhrifum samfélagsmiðla þ.e. áhrif þeirra á samskipti ásamt kostum og göllum
- félagslegum festum og hlutverkum mismunandi stofnana í samfélaginu
- samfélagsleg áhrif á sjálfsmynd og þarfir einstaklinga, ólíka menningu og áhrif menningar á líf einstaklinga
- félagsmótun, félagslegum viðmiðum, fjölmiðlum og áhrifum þeirra á einstaklinga
- helstu trúarbrögðum heimsins og helstu einkenni þeirra
- rannsóknaraðferðum félagsvísinda, almennum atriðum tengt stjórnmálum, fjölbreyttum vinnumarkaði og áhrif vinnunar á líf einstaklinga
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- geta aflað sér traustra og áreiðanlegra upplýsinga um viðfangsefni félagsfræðinnar
- greint upplýsingar og sett í fræðilegt samhengi
- tjá þekkingu sína á munnlegan og skriflegan hátt
- vinna á sjálfstæðan og ábyrgan hátt undir leiðsögn
- nýta margvíslega tækni í þekkingarleit og á ábyrgan og gagnrýnin hátt
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í umræðum þar sem hann getur tjáð skoðanir sínar, rökstutt þær og hlustað á skoðun annarra
- geta beitt öguðum vinnubrögð og borið ábyrgð á eigin námi
- vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
- búa til og miðla rannsóknarverkefni
- hugsa og starfa á gagnrýnin og skapandi hátt
- miðlað þekkingu sinni og hugmyndum með stafrænum hætti
- til að meta eigið vinnuframlag
- búa yfir hæfni til að takast á við frekara nám
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.