HEIM2IH05 – Inngangur að heimspeki

Námsgrein: Heimspeki

Heiti
Heimspeki, inngangur
Þrep
2
Einingafjöldi
5
Undanfari
Enginn
Í boði
Vor

Markmiðið er að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum og viðfangsefnum heimspekinnar og nokkra færni í beitingu þeirra. Byrjað verður á heillislíkingu Platóns, farið yfir draumarök Descartes og billjarðkúlur Humes, auk hugmynda Kants um nauðsyn þess að þora að hugsa sjálfstætt. Fjallað er um vísindaheimspeki, gervigreind og þá spurningu hvort tölvur geti hugsað.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu kenningum í þekkingarfræði
  • muninum á skoðun og þekkingu
  • muninum á afleiðslu og aðleiðslu
  • vísindalegri aðferð
  • sókratískri aðferð

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa þekkingarfræðilegt efni til skilnings
  • beita hugtökum eins og aðleiðslu og afleiðslu skilmerkiega
  • útskýra heimspekilegan texta með sínum eigin orðum
  • setja fram spurningar og taka þátt í heimspekilegri umræðu
  • tjá heimspekiþekkingu sína á munnlegan og skriflegan hátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • útskýra rökhyggju og raunhyggju á gagnrýninn hátt …sem er metið með… umræðum og verkefnum úr lesefni áfangans
  • taka þátt í gagnrýninni samræðu um heimspekilegt efni …sem er metið með… umræðum og verkefnum um málefni líðandi stundar
  • skrifa heimspekiritgerð um tiltekið efni …sem er metið með… heimildaritgerð skv. akademískum kröfum
  • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra á gagnrýninn og lýðræðislegan hátt …sem er metið með… einstaklings- og hópaverkefnum

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemandans er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru ýmis verkefni og heimildaritgerð.