Áfanginn er ætlaður þeim nemendum sem ekki hafa náð góðum tökum á námsefni íslensku í lokaáföngum grunnskóla. Stefnt er að því að efla sjálfstraust nemenda og trú á eigin málfærni í ræðu og riti. Áhersla er lögð á að nemendur bæti lestrartækni, lestarhraða og lesskilning sinn. Ennfremur fá þeir þjálfun í málfræðihugtökum sem nýtast í tal- og ritmáli og grunnhugtökum í ritgerðasmíð. Nemendur auka orðaforða sinn í ræðu og riti.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnhugtökum í ritgerðasmíð.
- helstu málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal – og ritmáli.
- orðaforða umfram það sem gerist í talmáli
- gildi góðrar lestarkunnáttu í lífi og starfi.
- nokkrum tegundum bókmennta- og nytjatexta, t.d. skáldsögum, smásögum og blaðagreinum
- helstu bókmenntahugtökum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja mismunandi blæbrigði og málsnið í tal- og ritmáli
- draga saman aðalatriði í fyrirlestrum og lesmáli
- taka saman og flytja stuttar endursagnir, lýsingar og kynningar á afmörkuðu efni
- skrifa ýmsar tegundir texta þar sem framsetning er skýr og skipulögð
- leita upplýsinga úr heimildum og nýta þær á viðurkenndan hátt sér til gagns
- lesa sér til gagns og gamans texta sem gera nokkrar kröfur til lesenda
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- semja stutta texta af ýmsu tagi með mismunandi málsniði
- beita einföldum blæbrigðum í málnotkun til að forðast einhæfni og endurtekningar
- skrifa ritgerð um efni að eigin vali
- túlka og meta atburðarrás og persónur í bókmenntum eða annars konar frásögnum
- greina helstu bókmenntahugtök í ýmsum tegundum texta
- miðla þekkingu sinn og hugmyndum með stafrænum hætti
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.