ÍSLE1AM04 – Fornámsáfangi í íslensku 2

Námsgrein: Íslenska

Heiti
Íslenska - fornám 2
Þrep
1
Einingafjöldi
4
Undanfari
Að nemandi hafi lokið einum íslenskuáfanga á 1. þrepi.
Í boði
Vor

Í áfanganum er lögð áhersla á að undirbúa nemendur undir frekara nám í íslensku. Nemendur þjálfast í lestri fjölbreyttra texta og munnlegri og skriflegri umfjöllun um þá. Lesnar eru smásögur, efni þeirra krufið og sett í samtímalegt samhengi. Helstu stafsetningar- og greinamerkjareglur rifjaðar upp og farið yfir grunnhugtök í bókmenntafræði og bragfræði. Nemendur rita fjölbreytta texta og læra að nýta sér ýmis konar hjálpargögn á borð við handbækur, orðabækur og leiðréttingarforrit. Í áfanganum þjálfast nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum ásamt því að þeir fá tækifæri til að vinna með öðrum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi lestrar og mismunandi lestraraðferðum
  • mikilvægi þekkingar á formgerð íslensks máls og muni talmáls og ritmáls
  • nokkrum tegundum bókmennta og nytjatexta og helstu hugtökum sem nýtast við umfjöllun um bókmenntir
  • uppbyggingu og framsetningu texta á mæltu og rituðu máli

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að skrifa ýmsar tegundir texta í samfelldu máli þar sem framsetningin er skýr og skipulögð
  • fylgja reglum um stafsetningu og greinamerkjasetningu og nýta sér handbækur og leiðréttingarforrit til þess
  • beita blæbrigðaríku málsniði í tal- og ritmáli
  • lesa sér til gagns og gamans texta sem gera nokkrar kröfur til lesenda og gera gein fyrir þeim á skipulegan hátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • styrkja eigin málfræni
  • tjá sig af nokkru öryggi á góðu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
  • túlka og meta atburðarrás og persónur í bókmenntum eða annars konar frásögnum
  • auka og bæta orðaforða og málskilning
  • miðla þekkingu sinni og hugmyndum með stafrænum hætti

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum. Til grundvallar matinu eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.