Í áfanganum er lögð áhersla á vísindalega nálgun á tungumálið. Fjallað verður um eðli mannlegs máls og nemendur fræðast um kenningar um alheimstungumál, máltöku barna og máltökuskeið og ýmis tal- og málmein. Þá verður fjallað um framtíð íslenskunnar og sérstaklega hugað að stafrænni stöðu hennar og annarra lítilla tungumála í tæknivæddum heimi. Í tengslum við þá umræðu verður umfjöllun um máltækni og tengsl hennar við hugbúnað og gagnasöfn, innlend og erlend. Leitast verður við að efla skilning nemenda á eðli mannlegs máls og kynna þeim helstu grundvallarhugtök og aðferðir málvísinda.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sérstöðu mannsins þegar kemur að tungumáli
- máltöku barna
- mismunandi kenningum um málþroska
- tal- og málmeinum
- félagslegum þáttum sem geta haft áhrif á málfar fólks og hvernig tungumálið mótar sjálfsmynd einstaklinga
- áhrifum samfélagsmiðla og annarrar nútímatækni á þróun tungumálsins
- hugbúnaði og gagnasöfnum í máltækni sem og máltækniáætlun fyrir íslensku
- heimildanotkun í tengslum við verkefnavinnu og gildi mismunandi heimilda
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta sér fræðileg hugtök í umfjöllun um tungumál
- beina sjónum að málþroska barna og ýmsum tal- og málmeinum
- átta sig á mismunandi málsniði og tali ólíkra hópa og greina ýmis félagsleg einkenni tungumáls
- vinna með tungumálið í tengslum við nútímatækni og samfélagsmiðla
- vinna með rannsóknartengt efni úr félagslegum málvísindum
- draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
- vinna á fræðilegan hátt úr gögnum sem tengjast efni áfangans og koma efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli, hvort sem um er að ræða talað eða ritað mál
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skoða félagslegar hliðar málsins eftir ýmsum leiðum og átta sig á áhrifum félagslegra þátta á tungumál og samskipti
- leggja mat á og efla eigin málfærni og annarra, til dæmis með því að nýta málfræðiupplýsingar og þekkingu sína á íslenska málkerfinu
- vinna með máltækni og hagnýt gagnasöfn á íslensku
- sýna víðsýni í umfjöllun um mál og málsnið mismunandi hópa
- skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta og beita málinu á viðeigandi hátt við ólíkar aðstæður í ræðu og riti
- taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá afstöðu sína og efasemdir um efnið og komast að rökstuddri niðurstöðu
- miðla þekkingu sinni og hugmyndum með stafrænum hætti
Námsmat
Námsmat byggir á leiðsagnarmati þar sem vinna nemandans er metin jafnóðum allan námstímann.