ÍÞRF2BH05 – Íþróttafræði

Námsgrein: Íþróttafræði

Heiti
Íþróttafræði - hreyfifræði, bein, vöðvar
Þrep
2
Einingafjöldi
5
Undanfari
Að nemandi hafi lokið 5 einingum í íþróttafræði á 2. þrepi.
Í boði
Vor

Áfanginn er bóklegur og verklegur og fjallað er um starfsemi mannslíkamans með áherslu á bein og vöðva. Sérstök áhersla verður lögð á þau líffæri og líffærakerfi sem tengjast hreyfingum mannslíkamans. Fjallað er um bein, bönd og liðamót, liðfleti og liðpoka. Einnig um hreyfingu í liðamótum og stefnu hreyfinga. Fjallað er um einstaka vöðva, upptök þeirra, festu og starf. Farið verður í blóðrás og öndunarfæri. Fjallað er um hugtök og grundvallaratriði hreyfifræðinnar og komið inn á tækni íþróttagreina. Áfanginn byggir að stórum hluta á starfrænni hreyfifræði, þ.e. hvernig vöðvar, bein og liðamót líkamans koma við sögu í fjölbreyttum hreyfingum. Nemendur gera æfingar með og án áhalda til að auka skilning sinn á því hvernig ákveðnar hreyfingar myndast í íþróttum. Enn fremur er fjallað um rétta líkamsbeitingu, starfsstellingar og hreyfingar við vinnu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu vöðvum og vöðvahópum líkamans
  • hlutverki beinagrindar og hreyfingu helstu liðamóta
  • beinum, böndum og liðamótum líkamans
  • helstu lögmálum hreyfifræðinnar
  • hjarta og æðakerfum líkamans
  • upplýsinga leit á veraldarvefnum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • þekkja helstu vöðva líkamans, upptök þeirra og festu
  • þekkja helstu bein líkamans, heiti þeirra og staðsetningu
  • þekkja liðgerðir og hreyfingar þeirra
  • vinna með helstu hreyfifræðilögmálin
  • beita réttri lyftitækni
  • nota réttar starfsstellingar
  • þekkja afkasta aukandi/hamlandi þætti varðandi hjarta og æða kerfi
  • finna upplýsingar og lesa úr þeim af veraldarvefnum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta greint hreyfingu helstu vöðva líkamans út frá upptöku og festu
  • geta grein frá staðsetningu og heita helstu beina líkamans
  • geta notað hreyfifræðilögmál til að skýra út ýmsar hreyfingar
  • geta greint vöðvavinnu í ákveðnum æfingum
  • geta greint mun á réttri og rangri líkamsbeitinu
  • geta grein frá helstu þáttum varðandi hjarta og æðakerfið
  • nýta upplýsingatækni til að vinna úr upplýsingum með fagmennsku í fyrirrúmi

Námsmat

Leiðsagnarmat