ÍÞRG1BL02 – Íþróttagrein

Námsgrein: Íþróttagrein

Heiti
Íþróttagrein - blak
Þrep
1
Einingafjöldi
2
Undanfari
Enginn
Í boði
Vor

Í áfanganum læra nemendur undirstöðuatriði í blaki. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur í blaki. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greinunum. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að íþróttirnar sé greindar sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Nemendur auki eigin getu í íþróttinni. Áfanginn er bóklegur og verklegur.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í blaki
  • leikfræði
  • skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
  • leikreglum
  • helstu þjálfunaraðferðum
  • mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í blaki

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur
  • beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
  • stunda blak og miðla því frá sér
  • þjálfa í blaki
  • sýna og framkvæma ýmsar æfingar sem tengjast íþróttinni

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta leiðbeint ýmsum aldurshópum í blaki með grunnatriði í huga
  • geta beitt fjölbreyttum aðferðum við þjálfun
  • stunda blakíþróttina með réttu leikreglum

Námsmat

Leiðsagnarmat – mæting/virkni