Í áfanganum læra nemendur undirstöðuatriði í handknattleik. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallar færni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í handknattleik
- skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
- leikreglum
- helstu þjálfunaraðferðum
- mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í handbolta
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur
- beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
- stunda handbolta og miðla því frá sér
- þjálfun í handbolta
- sýna og framkvæma ýmsar æfingar sem tengjast íþróttinni
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta þjálfað ýmsa aldurshópa í handbolta með ákveðin markmið í huga
- geta leiðbeint börnum rétta tækni í handbolta
- geta beitt fjölbreyttum aðferðum við þjálfun
- geta stundað íþróttina handbolta með réttum reglum og ákveðnum leikskilningi
Námsmat
Leiðsagnarmat- mæting/virkni