ÍÞJÁ2ÍÞ02 – Íþróttaþjálfun 2

Námsgrein: Íþróttaþjálfun

Heiti
Íþróttaþjálfun unglinga
Þrep
2
Einingafjöldi
2
Undanfari
Enginn
Í boði
Vor

Áfanginn er verklegur áfangi. Nemendur velja íþróttagrein sem þeir hafa sérstakan áhuga á og starfa sem aðstoðarþjálfari 2x í viku í eina önn. Hlutverk nemenda er að aðstoða þjálfara á æfingum og leysa þau verkefni sem upp koma í þjálfun unglinga. Hvort sem það snýr að samskiptum, æfinga vali eða úrlausn annara verkefna sem skapast. Einnig er möguleiki að taka einstaklinga í styrktar/almenna þjálfun en þá vinna nemendur undir leiðsögn kennara

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þjáfun iðkenda í viðkomandi íþrótt
  • stigvaxandi kröfum í viðkomandi íþrótt
  • samskiptum við iðkendur og foreldra
  • stefnu viðkomandi íþróttafélags

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • stjórna æfingum á viðkomandi aldursstigum
  • stjórnað æfingum með mismunandi erfiðleikastuðul í huga
  • samskiptum við börn og unglinga

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • stjórna æfingu í viðkomandi íþróttagrein
  • samskiptum við börn og foreldra
  • starfa með stefnu íþróttafélags að leiðarljósi

Námsmat

Leiðsagnarmat-mæting/virkni