Áfanginn er verklegur áfangi. Nemendur velja íþróttagrein sem þeir hafa sérstakan áhuga á og starfi sem aðstoðarþjálfari 2x í viku í eina önn. Hlutverk nemenda er að aðstoða þjálfara á æfingum og leysa þau verkefni sem upp koma í þjálfun barna. Hvort sem það snýr að samskiptum, æfinga vali eða úrlausn annara verkefna sem skapast.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þjálfun barna í viðkomandi íþrótt
- æfingavali í fyrir mismunandi aldur
- samskiptum við börn og foreldra
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þjálfa börn í viðkomandi íþrótt með aðstoð þjálfara
- greint íþróttina í smærri leikeiningar til að einfalda íþróttina
- samskiptum við börn
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- stjórna æfingu í viðkomandi íþrótt með aðstoð þjálfara
- leysa úr vandamálum sem koma upp í þjálfun barna
- Tekið frumkvæði við þær aðstæður sem koma upp á æfinum barna
Námsmat
Leiðsagnarmat- mæting/virkni