Áfanginn er verklegur. Nemendur fá alhliða hreyfireynslu með fjölbreytni að leiðarljósi á eigin forsendum. Eigin heilsurækt verður að fara fram með skipulegu hætti og undir leiðsögn þjálfara/leiðbeinanda. Einnig er hægt að nota aðstöðu í Íþróttamiðstöðinni. Nemendur eru hvattir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar bæði varðandi hreifingu og næringu. Nemandi sem veldur eiginn heilsurækt ber ábyrgð á því að kennari viti um mætingar hans.
Þekkingarmarkmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- alhliða líkams- og heilsurækt.
- styrkjandi og mótandi æfingum fyrir helstu vöðva og liðamót líkamans.
- skipulagningu eigin þjálfunar.
- forsendum og áhrifum þjálfunar á eiginn líkama og heilsu.
- orkuefnum kolvetni, próteini og fitu
- áhrifum lífstílls á heilsu og álagssjúkdóma
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- nýta sér ýmsar leiðir til að stunda styrktarþjálfun
- nýta sér ýmsar leiðir til að stunda þolþjálfun
- nýta sér fjölbreyttar leiðir til heilsuræktar
- lesa utan á matar umbúðir varðandi innihald orkuefna
- skilja hvaða þættir í eiginn lífstíl hafa áhrif á heilsu.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum sem varða þjálfun á eiginn líkama
- útbúa sérsniðna styrktar áætlun sem hentar honum sjálfum
- breyta eiginn lífstíl ef þörf er á
- velja og hafna ákveðnum matartegundum vegna hollustugildis
- finna eigin leið til heilsuræktar
- útbúa sérsniðna þolþjálfunar áætlun sem hentar honum sjálfum
Námsmat
Leiðsagnarmat