Í áfanganum er lögð áhersla á jarðfræði Íslands, tengsl uppruna landsins við landrekskenningar og landmótun af völdum innrænna og útrænna afla. Farið er í undirstöðuatriði steinda- og bergfræði, myndun mismunandi kvikugerða og eldvirkni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- notagildi jarðfræðiþekkingar
- myndun mismunandi landsvæða af völdum innrænna afla, s.s. út frá landreki, eldvirkni, jarðskjálftum og jarðhita
- landmótun af völdum útrænna afla, s.s. frostverkana, vatnsfalla, sjávar, jökla og vinds
- hugmyndium um eldvirkni á Íslandi og myndunarsögu landsins
- algengustu steindum og bergtegundum hérlendis
- helstu gerðum eldstöðva og geti skýrt mismunandi eldvirkni þeirra
- mismunandi gerðum vatnsfalla og einkennum þeirra
- ólíkum gerðum jökla, myndun þeirra og skriði
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja steindir og jarðfræðifyrirbrigði í náttúrunni
- leysa verkefni sem tengjast námsefninu almennt
- beita algengustu hugtökum og heitum í jarðfræði í umfjöllun sinni um myndun og gerð náttúrufyrirbæra
- nýta upplýsinga- og stafræna tækni við öflun upplýsinga og heimilda við verkefnavinnu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- afla sér upplýsinga og frekari þekkingar varðandi viðfangsefnið
- læra að njóta náttúrunnar og hins ólífræna í náttúrunni á ferðum sínum í framtíðinni
- gera sér grein fyrir gildi sérstakra náttúrufyrirbrigða
- gera sér grein fyrir mikilvægi þekkingar á jarðfræði við ákvörðunartöku mannsins þegar kemur að nýtingu og framkvæmdum
- taka ábyrga afstöðu til hegðun sinnar m.t.t. náttúrufyrirbrigða og sjálfbærrar nýtingar auðlinda
- takast á við frekara nám í náttúru- og jarðfræði
- miðla þekkingu sinni og skoðunum með stafrænum hætti …sem er metið með… ýmsum verkefnum
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.