Í þessum áfanga er gerð grein fyrir helstu viðfangsefnum sjálfbærni og sjálfbærri þróun í tengslum við Heimsmarkmið SÞ. Áhersla er lögð á markmið um hreint vatn og hreinlætisaðstöðu, sjálfbæra orku, sjálfbærar borgir og samfélög, ábyrga neyslu og framleiðslu ásamt aðgerðum í loftslagsmálum. Fjallað er um sjálfbærni í alþjóðlegu samhengi og út frá nærumhverfi. Fjallað um sjálfbæra neyslu einstaklinga og sjálfbæra framleiðslu fyrirtækja.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Heimsmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna sem fjalla um sjálfbæra þróun og sjálfbærni
- Hugtökunum sjálfbærrar þróunar og sjálfbærni og hvað þau merkja í alþjóðlegu samhengi og fyrir nærsamfélag
- Hvað sjálfbær nýting auðlinda merkir
- Skilja samhengi nýtingar auðlinda og áhrifa hennar á lífríki og landslag og þáttar mannsins í þróun umhverfisins
- Aðgerðum fyrirtækja og stofnanna til að efla sjálfbærni
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Fjalla um álitamál sem varða sjálfbærni í víðum skilningi
- Tengja saman siðferðisvitund og vitund um orsakir og afleiðingar af gerðum mannsins sem tengjast sjálfbærni
- Tengja saman ólíkar fræðigreinar hvað varðar sjálfbærni samfélaga
- Öflun frekari upplýsinga á sjálfstæðan hátt um sjálfbærni og sjálfbæra þróun
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Tengja undirstöðuþekkingu á sjálfbærni við daglegt líf
- Taka ábyrgð á eigin lífi með hliðsjón af sjálfbærni samfélaga
- Geta greint nauðsynlegar upplýsingar um sjálfbærni og sjálfbæra þróun og geta hagnýtt sér og miðlað þeim upplýsingum á skapandi hátt
Námsmat
Leiðsagnarmat; verkefnaskil og virkni. Sjálfsmat og jafningjamat.