LÍFS1LE01 – Lífsnám 5

Námsgrein: Lífsleikni

Heiti
Lífsnám með áherslu á mannréttindi og jafnrétti í nútímasamfélagi.
Þrep
1
Einingafjöldi
1
Undanfari
Enginn

Í áfanganum er lögð áhersla á að gera nemendur meðvitaða um mannréttindi og jafnrétti í nútímasamfélagi í tengslum við Heimsmarkmið SÞ. Fjallað verður um ólík samfélög og menningu í þessu samhengi. Greint hvernig þættir eins og búseta, fötlun, kyn og kynhneigð geti skapað mismun eða forréttindi í lífi fólks.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Almennri stöðu kynjanna og grundvallaratriðum varðandi mannréttindi og jafnrétti í nútímasamfelagi
  • Ólíkum menningarheimum og mismunandi trúarbrögðum ásamt birtingarmynd staðalímynda og fordóma í samfélaginu
  • Hvernig þættir eins og búseta, fötlun, kyn og kynhneigð geti skapað mismun eða forréttindi í lífi fólks

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Taka þátt í umræðu um almenna stöðu kynjanna og grundvallaratriði varðandi mannréttindi og jafnrétti í nútímasamfélagi
  • Taka þátt í samtali um ólíka menningarheima og trúarbrögð ásamt birtingarmynd staðalímynda og fordóma í samfélaginu
  • Taka þátt í samtali um hvernig búseta, fötlun, kyn og kynhneigð geta skapað mismun eða forréttindi í lífi fólks

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Miðla þekkingu og skilningi á mannréttindum og jafnrétti í nútímasamfélagi
  • Vinna sjálfstætt og með öðrum að öflun upplýsinga, greiningu og miðlun þeirra

Námsmat

Leiðsagnarmat; verkefnaskil og virkni. Sjálfsmat og jafningjamat.