Markmið áfangans er að nemendur kynnist viðfangsefnum, rannsóknaraðferðum og helstu álitamálum í þroskasálfræði, þ. á m. hvort erfðir eða uppeldi ráði mestu um eiginleika einstaklingsins. Fjallað er um þróun þroskasálfræði og helstu kenningar. Lögð er mikil áhersla á fræðileg vinnubrögð.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Helstu viðfangsefnum þroskasálfræðinnar
- Greinarmuninum á erfða- og umhverfisþáttum
- Helstu þroskaröskunum og viðbrögðum við þeim
- Þekktum tilviksathugunum og rannsóknum í þroskasálfræði
- Helstu gagnrýni á þroskasálfræðikenningar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita hugökum þroskasálfræðinnar á skilmerkilegan hátt
- greina helstu áhrifaþætti og afleiðingar þroskaraskana
- greina grein fyrir kenningum og niðurstöðum rannsókna
- spyrja og ræða á gagnrýninn hátt um helstu viðfangsefni fagsins
- útskýra muninn á umhverfis- og erfðaþáttum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- leita svara við þeim spurningum sem þroskasálfræðin leitar svara við …sem er metið með… prófum, verkefnum og umræðum
- fjalla um erfða- og umhverfisáhrif sem hafa áhrif á þroska …sem er metið með… prófum og verkefnum
- afla sér upplýsinga um þroskasálfræðilegt efni, greina aðalatriði þeirra og nýta sér til frekari vinnslu …sem er metið með… rannsókn sem unnin er í hóp eða ritgerð unninni af einstaklingi
- fjalla sjálfstætt og í samvinnu við aðra um þroskasálfræði á gagnrýninn hátt …sem er metið með… einstaklings- og hópaverkefnum
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstimann. Til grundvallar matinu eru fjölmörg verkefni af ýmsum stærðum og gerðum úr öllum námsþáttum.