Spænskunáminu er skipt í erfiðleikastig samkvæmt evrópsku tungumálamöppunni. Þessi áfangi er byrjunaráfangi í spænsku (A1) Í áfanganum er lögð áhersla á samskipti og tjáningu ásamt hinum fjórum þáttum tungumálanáms, samtali, ritun, lestri og hlustun. Áfanginn er verkfæri til að hjálpa nemendum að ná tökum spænskunni, á hvað námsbraut sem er. Fjölbreyttar kennsluaðferðir eru notaðar til þess að ná markmiðum áfangans. Lögð er áhersla á að nemendur læri að bera ábyrgð á eigin námi.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- einföldum orðum og orðasamböndum úr daglegu tali
- almennum málhljóðum í spænsku máli
- einföldum orðum og orðasamböndum út daglegu tali
- að heilsast og kveðjast, spyrja/biðja um/panta og bjóða aðstoð
- bjarga sér á spænsku og skilið einfaldar upplýsingar
- að nota hjálpargögn sér til aðstoðar við námið
- spænskri menningu og löndum þar sem spænska er töluð
- tengslum á milli Íslands og spænskumælandi landa
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja og nota orð og orðasambönd á spænsku
- skilja einfaldan texta og auglýsingar
- spyrja og svara einföldum spurningum um þekkt efni
- nýta sér grundvallaratriði úr spænskri málfræði (kyn, tala, beyging)
- taka þátt í einföldum samtölum
- þekkja tölur, fjölda, kostnað og tíma
- tjá sig við aðra bekkjarfélaga
- vinna með öðrum
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- kynna sálfan sig og aðra
- eiga einföld samskipti; svara og spyrja spurninga um persónulega þætti
- lesa stutta texta á spænsku
- skrifa stutta texta með útskýringum
- hlusta og skilja einfalda texta
- nýta sér spænskan orðaforða í tengslum við áhugamál
- geta unnið með öðrum
- miðla verkefnum með fjölbreyttum stafrænum hætti
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.