STÍM1AA05 – Skapandi greinar

Námsgrein: STEAM - skapandi geinar

Heiti
Tækni, forritun og hönnun
Þrep
1
Einingafjöldi
5
Undanfari
Enginn
Í boði
Vor

Í þessum áfanga er áhersla lögð á að nemendur öðlist tæknifærni og þjálfist í grunnþáttum stafrænnar hönnunar, miðlunar og forritunar. Nemendur læra að nýta sér hugbúnað, tæki og aðferðir við hönnun og framleiðslu fjölbreyttra verkefna.  Nemendur fá tækifæri til að læra á mynd- og hljóðver til að miðla hugmyndum og verkefnum. Nemendur fást við grunnþætti forritunar í gegnum handleidd verkefni og með því að hanna og forrita eigin lausnir.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hugbúnaði, tækjum og aðferðum sem nýtast til sköpunar og miðlunar.
  • Grunnþáttum forritunar í hagnýtum verkefnum.
  • Hvernig hægt er að vinna í mynd- og hljóðveri.
  • Mikilvægi vandaðra vinnubragða og skipulagi í flóknum verkefnum.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nota hugbúnað, tæki og aðferðir í sköpun sinni og miðlun.
  • Beita skapandi og greinandi hugsun við lausn verkefna.
  • Sýna seiglu og bera ábyrgð á eigin verkefnavinnu.
  • Nýta sér samspil tækni, hönnunarhugsunar og stafrænnar miðlunar.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skapa eigin útfærslur að lausnum verkefna.
  • Vinna að hagnýtum og skapandi verkefnum.
  • Afla upplýsinga, túlka þær og miðla.
  • Útskýra ferli og vinnulag í eigin verkefnum.

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.