Í áfanganum er unnið út frá nýskapandi hugsun og frumkvöðlastarf. Lögð áhersla á að nemendur fái tækifæri til að tengjast atvinnulífi og samfélagi við úrvinnslu verkefna. Nemendur þjálfa sjálfstæð vinnubrögð með áherslu á eigin hugmyndavinnu, útfærslu verkefnis og kynningu hugmynda. Nemendur vinna verkefni annað hvort í teymi, með fulltrúm atvinnulífs og samfélags eða sem einstaklingar. Mikið svigrúm er gefið til að vinna með eigið áhugasvið og hvatt til nýsköpunar í víðum skilningi.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Hugtökum og aðferðum sem tengjast nýsköpun og frumkvöðlastarfi.
- Þeirri ábyrgð sem fylgir því að vinna að raunverulegum verkefnum.
- Eigin áhugasviði og styrkleikum í nýskapandi vinnu.
- Mikilvægi góðra samskipta við samstarfsaðila og nærsamfélag.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nota aðferðir nýsköpunar og frumkvöðlavinnu.
- Nota fjölbreyttar aðferðir og tækni við miðlun þekkingar sinnar og hugmynda.
- Sýna seiglu og halda vel utan um verkefnaþróun.
- Vinna sjálfstætt og með öðrum að nýskapandi verkefnum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Vinna út frá eigin áhugasviði að verkefni frá hugmynd til afurðar.
- Eiga frumkvæði að samskiptum við sérfræðinga og afla þannig frekari þekkingar.
- Kynna hugmyndir sínar og afurðir fyrir fulltrúum atvinnulífs og samfélags.
- Útskýra ferli og vinnulag í eigin verkefnum.
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.