Áfanginn er verklegur matreiðsluáfangi þar sem nemendur læra undirstöðu matargerðar og öðlast færni til að útbúa einfaldar, fjölbreyttar og næringarríkar máltíðir. Áhersla er lögð á matreiðsluaðferðir, uppskriftir, meðhöndlun hráefna, notkun eldhúsáhalda, hreinlæti og matvælaöryggi. Einnig er fjallað um skipulagningu máltíða, hráefniskostnað, hagkvæm innkaup og nýtingu matvæla.
Kennslan fer að mestu fram í eldhúsi þar sem nemendur vinna saman að undirbúningi, matreiðslu og frágangi með áherslu á sjálfstæði, ábyrgð og örugg vinnubrögð. Nemendur kynna sér uppskriftir fyrir kennslustundir og stefnt er að því að máltíðirnar nýtist þeim sem kvöldmatur.
Áfanginn er kenndur einu sinni í viku, tvær klukkustundir í senn, og er hámarksfjöldi nemenda 12.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu matreiðsluaðferðum, svo sem suðu, steikingu og bakstri
- mikilvægi hreinlætis og matvælaöryggis við meðhöndlun matvæla
- helstu eldhúsáhöldum og tækjum og öruggri notkun þeirra
- algengum hráefnum og mismunandi notkunarmöguleikum þeirra
- grunnatriðum næringar og samsetningu fjölbreyttra máltíða
- mikilvægi skipulagningar og undirbúnings við matargerð
- hráefniskostnaði, hagkvæmum innkaupum og leiðum til að draga úr matarsóun
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa og fylgja einföldum uppskriftum
- undirbúa hráefni og beita helstu matreiðsluaðferðum
- nota algeng eldhúsáhöld og tæki á öruggan hátt
- viðhafa viðeigandi hreinlæti og örugga meðhöndlun matvæla
- skipuleggja vinnu sína og samhæfa mismunandi verkþætti við matargerð
- útbúa einfaldar og fjölbreyttar máltíðir
- vinna með öðrum að sameiginlegum verkefnum í eldhúsi
- ganga frá vinnuaðstöðu, áhöldum og búnaði eftir matargerð
- nýta hráefni á hagkvæman hátt og takmarka matarsóun
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- undirbúa og elda einfaldar máltíðir fyrir sig og aðra
- velja viðeigandi hráefni og matreiðsluaðferðir eftir aðstæðum
- skipuleggja matargerð með tilliti til tíma, kostnaðar og aðgengilegra hráefna
- sýna sjálfstæði og ábyrgð við vinnu í eldhúsi
- beita öruggum og hreinlegum vinnubrögðum við matargerð og frágang
- leysa einföld vandamál sem koma upp við matreiðslu
- vinna með öðrum, skipta með sér verkum og taka ábyrgð á sameiginlegri vinnu
- meta eigin vinnubrögð og nýta reynslu sína til að bæta færni í matargerð
- nýta þekkingu sína til að taka meðvitaðar ákvarðanir um matargerð, innkaup og nýtingu matvæla
Námsmat
Leiðsagnarmat er meginuppistaða námsmats. Námsmat byggist fyrst og fremst á verklegri vinnu nemenda þar sem lögð er áhersla á matreiðslufærni, sjálfstæði, hreinlæti, öryggi, samvinnu og ábyrgð.
Frammistaða nemenda er metin jafnt og þétt yfir önnina með hliðsjón af vinnubrögðum, undirbúningi, þátttöku í verklegum verkefnum og framförum. Einnig er tekið mið af hæfni nemenda til að skipuleggja matargerð, fylgja uppskriftum, nýta hráefni og ganga frá vinnuaðstöðu.
Nemendur fá reglulega endurgjöf og tækifæri til að meta eigin framfarir. Áhersla er lögð á að þeir sýni aukið sjálfstæði og öryggi í matargerð eftir því sem líður á áfangann.