ÚTIV1ÚS02 – Útivist í snjó

Námsgrein: Útivist

Heiti
Útivist í snjó
Þrep
1
Einingafjöldi
2
Undanfari
Enginn
Í boði
Vor

Áfanginn veitir nemendum hagnýta þjálfun og reynslu í vetrarútivist með áherslu á skipulag og framkvæmd tveggja daga skíðaferðar (með einni næturgistingu). Lögð er áhersla á undirbúning, fatnað, mat, svefnútbúnað, veðurathuganir og grunntök í skíðaiðkun við breytilegar aðstæður í fjalli.

Þekkingarviðmið

Að loknum áfanga skal nemandi þekkja og skilja:

  • mikilvægi rétts klæðaburðar og eiginleika mismunandi efna í kulda og snjó
  • hvernig velja skal og pakk viðeigandi svefnbúnaði (svefnpokum, dýnum) og næringarríkum mat fyrir vetrarferð
  • að geta metið aðstæður í fjallinu útfrá veðurspá
  • grundvallaratriði í öryggismálum og mati á aðstæðum á skíðasvæðum

Leikniviðmið

Að loknum áfanga skal nemandi geta:

  • búið sig undir og pakkað sjálfstætt fyrir tveggja daga síðaferð (þ.m.t. mat, fatnaði, svefnbúnaði)
  • klætt sig og metið þörf á fatnaði miðað við veður
  • lesið og túlkað veðurspár og metið aðstæður á skíðasvæði með tilliti til öryggis
  • beitt grunnatriðum á skíðum (t.d. grundvallarstöðu, beygjum, stoppum og göngu á skíðum) og sýnt færni við að fóta sig í brekkum og á sléttlendi

Hæfniviðmið

Að loknum áfanga skal nemandi sýna almenna hæfni til að:

  • taka ábyrgð á eigin undirbúningi, búnaði og heilsu í krefjandi vetraraðstæðum
  • vinna í hóp og sýna tillitsemi og samvinnu í tengslum við ferðalög og útivist
  • meta eigin getu og takmörk á skíðum og við erfiðari veður aðstæður

Námsmat

Virkni og þátttaka í undirbúningsfundum og í sjálfri skíðaferðinni.  Val á réttum búnaði (matur og fatnaður) sem tryggir rétta upplifun og þátttöku í ferðinni. Lokaeinkunn áfanga er staðið/fallið.