Áfanginn er hugsaður sem millistigsáfangi innan myndlistar-og hönnunargreina. Það er ekki forkrafa en æskilegt ef nemendur hafa grunn í teikningu eða áhuga á henni. Í áfanganum er farið yfir formskynjun og hugmyndavinnu áður en nemendur fara í markvissari vinnu. Áfanginn fjallar um sköpun og notkun grunnhugtaka grafískrar hönnunar í sjónrænni miðlun. Nemendur kynnast þessum grunnhugtökum í gegnum skilta- og leturgerð þar sem þeir prófa mismunandi stíla. Lögð er áhersla á hugmyndavinnu, ferli og þróun persónulegs stíls. Nemendur vinna verkefni frá skissu yfir í lokaútkomu og rökstyðja ákvarðanir sínar. Áhersla er á sjálfstæða vinnu með leiðsögn kennara.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnhugtökum leturgerðar og sjónrænnar miðlunar
- tengsl forms, stíls og merkingar
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- teikna og þróa eigið letur
- beita bæði handteikningu og einföldum stafrænum aðferðum
- vinna markvisst í gegnum skapandi ferli
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- hagnýta þekkingu sína í raunverkefnum
- taka meðvitaðar sjónrænar ákvarðanir
- rökstyðja og miðla eigin verkum
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni s.s. hugmyndavinna, þróun og ferli, gæði útfærslu, rökstuðningur og kynning, ekki eingöngu „falleg niðurstaða“.