Stefna Menntaskóla Borgarfjarðar í umhverfismálum er að efla vitund bæði starfsfólks og nemenda um mikilvægi þess að bera virðingu fyrir umhverfinu og að hvert og eitt okkar axli ábyrgð á góðri framkomu við jörðina.
Markmið
Að efla þekkingu og vitund starfsfólks og nemenda um umhverfismál
Að umgengni verði til fyrirmyndar bæði innan sem utan skólans
Að lágmarka notkun pappírs og endurnýta þann pappír sem fellur til vegna starfsemi skólans
Að hugað verði að umhverfissjónarmiðum við kaup á ræstingarvörum
Að kaupa vörur sem hafa vistvæna vottun
Að farga rafhlöðum og öðrum spilliefnum á viðeigandi hátt
Að flokka sorp eftir föngum
Að skólinn hljóti Grænfánann
Leiðir
Hvetja kennara og nemendur til þess að ljósrita beggja vegna á pappír
Koma fyrir ílátum á ákveðnum stöðum í skólanum fyrir endurnýjanlega hluti s.s. gosflöskur/dósir og pappír
Að lágmarka notkun einnota matar- og drykkjaríláta
Að starfsfólk og nemendur gangi um skólann á inniskóm
Hafa mottu sem tekur við bleytu og óhreinindum við aðalinngang skólans
Spara orku með því að slökkva ljós og á tækjum þegar þau eru ekki í notkun
Sinna reglulegri fræðslu um umhverfið og umgengni okkar um það