Þessi áfangi er byrjunaráfangi í eðlisfræði. Nemendur kynnast hreyfi- og kraftafræði Newtons, út frá línulegri hreyfingu, ásamt vinnu- og orkulögmálinu í tengslum við varmafræði. Nemendur eiga að geta beitt SI einingakerfinu og kunni skil á helstu lögmálum og jöfnum sem tengjast námsefninu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grundvallarhugtökum í hreyfi- og kraftafræði Newtons
- hreyfingu hlutar með jafnri hröðun eftir beinni braut
- skilgreiningu á massa og þyngd
- lögmálinu um varðveislu orkunnar og hreyfilögmál Newtons
- varðveislu skriðþunga í einföldum árekstri
- SI einingakerfinu við lausn verkefna
- notkun stafrænna miðla við lausn og framsetningu verkefna.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- fara með tölur, vigra og ýmis stærðfræðileg hugtök við lausn eðlisfræðilegra verkefna
- beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi
- umrita jöfnur og finna óþekktar stærðir í ýmsum dæmum
- framkvæma verklegar æfingar og setja fram niðurstöður á réttan hátt
- gera skýrslur úr verklegum æfingum og geti metið hvort niðurstöður mælinga séu raunhæfar
- nýta stafræna miðla við úrlausn verkefna.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og sinni náminu af ábyrgð
- nota námsefni og gögn á markvissan hátt
- yfirfæra þekkingu úr öðrum raungreinum til að auðvelda lausn og skilning á verkefnum
- tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.