Í áfanganum kynnast nemendur grunnatriðum gervigreindar, hvernig hún virkar og hvernig hægt er að nýta hana í verkefnum. Fjallað er um reiknirit, þjálfunargögn, vélanám og stór mállíkön með áherslu á að skilja hvernig gervigreindarkerfi vinna úr upplýsingum og mynda niðurstöður.
Áfanginn er að mestu verklegur þar sem nemendur prófa mismunandi gervigreindarkerfi og nota þau til að búa til einfaldar vefsíður, forrit og önnur stafræn verkfæri. Ekki er gerð krafa um fyrri forritunarþekkingu. Nemendur læra að gefa gervigreind skýr fyrirmæli, skipuleggja verkefni, skilgreina kröfur og þróa lausnir með prófunum og endurbótum.
Nemendur fá einnig að þjálfa einföld vélanámslíkön til að öðlast skilning á hlutverki gagna og þjálfunar. Jafnframt er fjallað um áreiðanleika gervigreindar, gagnavernd, hlutdrægni og samfélagsleg áhrif tækninnar.
Kennslan byggist á verkefnavinnu þar sem nemendur vinna sjálfstætt og í hópum að þróun og mati á eigin lausnum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Helstu hugtökum gervigreindar, vélanáms og reiknirita.
- Grunnuppbyggingu gervigreindarkerfa og hlutverki gagna við þjálfun þeirra.
- Meginatriðum í virkni tauganeta og stórra mállíkana.
- Hvernig gervigreind getur aðstoðað við hönnun og þróun stafrænna lausna.
- Hvernig fyrirmæli, samhengisrammar og reglur hafa áhrif á hegðun og niðurstöður gervigreindarkerfa.
- Mikilvægi prófana og endurbóta við þróun stafrænna lausna.
- Helstu styrkleikum, takmörkunum og áhættu við notkun gervigreindar.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nýta gervigreindarverkfæri við lausn afmarkaðra verkefna.
- Hanna og þróa einfaldar stafrænar lausnir með aðstoð gervigreindar.
- Setja fram skýrar kröfur og fyrirmæli um virkni og útlit stafrænna afurða.
- Útbúa samhengisramma og skilgreina hlutverk, reglur og vinnuferli fyrir gervigreindarkerfi.
- Nota einföld verkfæri til að þjálfa og prófa vélanámslíkön.
- Prófa stafrænar lausnir, greina vandamál og gera endurbætur með aðstoð gervigreindar.
- Meta og sannreyna niðurstöður sem gervigreind skilar.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt sér þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Útskýra með eigin orðum grundvallarvirkni einfaldra gervigreindarkerfa.
- Hanna og útfæra afmarkaða stafræna lausn með aðstoð gervigreindar.
- Skipuleggja þróunarferli frá hugmynd að virkri afurð.
- Beita skipulögðum vinnubrögðum við prófanir, mat og endurbætur á stafrænni lausn.
- Meta hvenær gervigreind hentar til lausnar verkefna og hvenær aðrar aðferðir eiga betur við.
- Sýna sjálfstæði og gagnrýna hugsun við notkun gervigreindar og taka ábyrgð á eigin vinnu.
- Gera grein fyrir eigin lausn, vinnuferli og þeim ákvörðunum sem teknar voru við þróun verkefnis.
Námsmat
Námsmat byggist á verkefnavinnu, skráningu vinnuferlis, prófunum, endurbótum og kynningu á niðurstöðum. Við mat er lögð áhersla á skilning á gervigreind, sjálfstæða lausnaleit, skýra fyrirmælagjöf, gæði verkefna og hæfni nemenda til að útskýra eigin vinnu.
Ekki er gerð krafa um að nemendur geti skrifað forritskóða sjálfstætt. Metin er hæfni þeirra til að nýta gervigreind á markvissan hátt við hönnun, þróun og prófun stafrænna lausna.