ÍÞRG1HA02 – Íþróttagrein

Námsgrein: Íþróttagrein

Heiti
Íþróttagrein - handbolti
Þrep
1
Einingafjöldi
2
Undanfari
Enginn
Í boði
Haust

Í áfanganum læra nemendur undirstöðuatriði í handknattleik. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallar færni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Áfanginn er bóklegur og verklegur.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í handknattleik
  • skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
  • leikreglum
  • helstu þjálfunaraðferðum
  • mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í handbolta

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur
  • beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
  • stunda handbolta og miðla því frá sér
  • þjálfun í handbolta
  • sýna og framkvæma ýmsar æfingar sem tengjast íþróttinni

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta þjálfað ýmsa aldurshópa í handbolta með ákveðin markmið í huga
  • geta leiðbeint börnum rétta tækni í handbolta
  • geta beitt fjölbreyttum aðferðum við þjálfun
  • geta stundað íþróttina handbolta með réttum reglum og ákveðnum leikskilningi

Námsmat

Leiðsagnarmat- mæting/virkni