LÍFF2FR05 – Líffræði

Námsgrein: Líffræði

Heiti
Grunnáfangi í frumulíffræði og erfðafræði
Þrep
2
Einingafjöldi
5
Undanfari
Enginn
Í boði
Haust

Í áfanganum er lögð áhersla á grunnþætti í frumulíffræði og erfðafræði. Farið verður í byggingu og starfsemi mismunandi frumuhluta. Fjallað verður um frumuskiptingar og erfðaefnið.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • byggingu og starfsemi fruma; heilkjörnunga og dreifkjörnunga
  • gerð og hlutverki frumulíffæra, frumuhluta
  • flutningi efna um frumuhimnur
  • kenningum um tilurð og þróun heilkjörnunga
  • mismunandi frumuskiptingum
  • sáð- og eggfrumumyndun hjá manninum
  • lögmálum Mendels og algengum erfðamynstrum
  • byggingu DNA og RNA
  • genatjáningu; afritun, umritun og þýðing erfðaefnisins
  • mismunandi genastökkbreytingum
  • grunnatriðum í erfðatækni

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota ljóssmásjá
  • skoða frumur og vefi með ljóssmásjá
  • leysa erfðafræðidæmi
  • lesa úr erfðamynstrum
  • lesa úr erfðatáknmálinu
  • nýta upplýsingatækni við öflun upplýsinga og heimilda við verkefnavinnu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • auka skilning sinn á því smásæja í lifandi efni sem metið er með verkefnum og verklegum æfingum
  • tengja undirstöðuþekkingu í frumu- og erfðafræði við daglegt líf sem metið er með munnlegum, stafrænum og skriflegum verkefnum
  • bera virðingu fyrir og taka ábyrga afstöðu til hegðun sinnar m.t.t. lifandi náttúru og eigin líkama
  • vera meðvitaðri um ástæður erfðafræðilegrar fötlunar og geti tekið ábyrga afstöðu til málefna þar að lútandi
  • afla sér upplýsinga og frekari þekkingar varðandi viðfangsefnið …sem er metið með… ýmsum verkefnum
  • þjálfa sjálfstæð vinnubrögð við úrlausn verkefna …sem er metið með… leiðsagnar- og sjálfsmati
  • takast á við frekara nám í efna- og náttúrufræðum
  • miðla þekkingu sinni og skoðunum með stafrænum hætti

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.