Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa nú þegar tileinkað sér ritun í samræmi við þrep A2 í evrópska tungumálarammanum. Textar verða smám saman lengri og þyngri og meginmarkmið er að auka og bæta orðaforða og tjáningarhæfni í spænsku og efla sjálfstæð vinnubrögð nemenda í náminu. Áhersla verður lögð á að nemendur tjái sig sem mest á spænsku í töluðu og rituðu máli, og á fjölbreytta og skapandi verkefnavinnu þar sem tekið er tillit til áhuga nemenda eins mikið og unnt er. Nemendur geri sér ljósa eigin ábyrgð í málanámi og átti sig á mikilvægi eigin frumkvæðis og vinnu. Við lok áfangans eiga nemendur að vera komnir að mörkum A2 og B1 samkvæmt evrópska matsrammanum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
- Nokkrum helstu grundvallarþáttum spænsks málkerfis svo sem framburði, tónfalli og einfaldri setningaskipan
- Spænskumælandi löndum og fengið innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þjóðanna
- Einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Fylgjast með frásögnum eða samtölum um almenn efni eða sérhæfðari málefni sem hann þekkir þar sem talað er skýrt og áheyrilega.
- Lesa og skilja ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um almennt efni sem fjallað er um í áfanganum.
- Fylgja söguþræði í einföldum bókmenntatextum.
- Taka þátt í almennum samræðum um efni sem hann þekkir.
- Segja frá á skýran hátt í nútíð og þátíð og halda stutta kynningu á undirbúnu efni með því að beita orðaforða, setningagerð og framburði á sem réttastan hátt
- Skrifa samfellda texta um ýmis efni sem hann þekkir, t.d. mannlýsingar, lýsingar á stöðum, atburðum og umhverfi og tjá eigin skoðanir
- Nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Lesa og greina margskonar gerðir texta og vinna úr þeim á fjölbreyttan hátt.
- Tileinka sér aðalatriðin í stuttum og/eða einföldum rauntextum af ýmsu tagi og tjá eigin skoðanir og hugmyndir.
- Segja frá eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu.
- Takast á við flestar algengar aðstæður þar sem reynir á málkunnáttu og orðaforða.
- Skrifa um hugðarefni sín og áhugamál, ýmis málefni og atburði, ímyndaða eða raunverulega, í þátíð og nútíð
- Tjá sig um atburði með því að beita nútíð, framtíð og liðinni tíð og halda kynningu á undirbúnu efni með því að beita orðaforða, setningagerð og framburði á sem réttastan hátt.
- Skrifa samantekt byggða á tilteknu efni, s.s. kvikmynd, blaðagrein, eða sögu.
- Miðla verkefnum og hugmyndum með fjölbreyttum stafrænum hætti.
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.