UPPE2UM05 – Uppeldisfræði

Námsgrein: Uppeldisfræði

Heiti
Inngangur að uppeldis- og menntunarfræði
Þrep
2
Einingafjöldi
5
Undanfari
Enginn
Í boði
Vor

Áfanginn er grunnáfangi í uppeldisfræði og er ætlaður til kynningar á fræðigreininni uppeldis- og menntunarfræði. Fjallað er upphaf uppeldis og ólíkum áherslum út frá sögulegum tímabilum, hlutverk uppeldisstofana, frumkvöðla í uppeldisfræðum. Einnig er fjallað um þroskaferil barnsins, kenningar um vitsmuna-, siðgæðis- og -tilfinningaþroska. Fjallað er um félags- og sálarþroska, sjálfsmynd barna, þarfir og áhugahvöt, tilfinningatengsl barna við foreldra og ættingja. Þættir og listir í lífi barna eru kynnt fyrir nemendum þ.e. barnamenning, áhrif teikninga, bækur, áhrif fjölmiðla á börn, leikir og leikföng ásamt íþróttum og íþróttauppeldi. Auk þess er fjallað um áföll og kvíðavalda í lífi barna ásamt upplifun barna af hjónaskilnuðum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • upphaf uppeldis ásamt ólíkum áherslum í uppeldi barna út frá mismunandi tímabilum sögunnar og þróun fræðigreinarinnar
  • hlutverk uppeldisstofnana og frumkvöðla í uppeldisfræði
  • þroskaferil barna, kenningar um vitsmuna-, siðgæðis- og tilfinningaþroska
  • félags- og sálarþroska barna, sjálfsmynd barna, þarfir og áhugahvöt, tilfinningatengsl barna við foreldra og ættingja
  • áhrifaþætti í lífi barna þ.e. barnamenning, teikningar, bækur, fjölmiðlar, leikir og leikföng, íþróttir og íþróttauppeldi
  • áföllum og kvíðavöldum í lífi barna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • geta aflað sér traustra og áreiðanlegra upplýsinga um viðfangsefni uppeldisfræðinnar
  • greint upplýsingar og sett í fræðilegt samhengi
  • tjá þekkingu sína á munnlegan og skriflegan hátt
  • vinna á sjálfstæðan og ábyrgan hátt undir leiðsögn
  • nýta margvíslega tækni í þekkingarleit og á ábyrgan og gagnrýnin hátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • taka þátt í umræðum þar sem hann getur tjáð skoðanir sínar, rökstutt þær og hlustað á skoðun annarra
  • geta beitt öguðum vinnubrögð og borið ábyrgð á eigin námi
  • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
  • hugsa og starfa á gagnrýnin og skapandi hátt
  • miðlað þekkingu sinni og hugmyndum með stafrænum hætti
  • til að meta eigið vinnuframlag
  • búa yfir hæfni til að takast á við frekara nám

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstimann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.