Áfanginn veitir nemendum hagnýta þjálfun og reynslu í vetrarútivist með áherslu á skipulag og framkvæmd tveggja daga skíðaferðar (með einni næturgistingu). Lögð er áhersla á undirbúning, fatnað, mat, svefnútbúnað, veðurathuganir og grunntök í skíðaiðkun við breytilegar aðstæður í fjalli.
Þekkingarviðmið
Að loknum áfanga skal nemandi þekkja og skilja:
- mikilvægi rétts klæðaburðar og eiginleika mismunandi efna í kulda og snjó
- hvernig velja skal og pakk viðeigandi svefnbúnaði (svefnpokum, dýnum) og næringarríkum mat fyrir vetrarferð
- að geta metið aðstæður í fjallinu útfrá veðurspá
- grundvallaratriði í öryggismálum og mati á aðstæðum á skíðasvæðum
Leikniviðmið
Að loknum áfanga skal nemandi geta:
- búið sig undir og pakkað sjálfstætt fyrir tveggja daga síðaferð (þ.m.t. mat, fatnaði, svefnbúnaði)
- klætt sig og metið þörf á fatnaði miðað við veður
- lesið og túlkað veðurspár og metið aðstæður á skíðasvæði með tilliti til öryggis
- beitt grunnatriðum á skíðum (t.d. grundvallarstöðu, beygjum, stoppum og göngu á skíðum) og sýnt færni við að fóta sig í brekkum og á sléttlendi
Hæfniviðmið
Að loknum áfanga skal nemandi sýna almenna hæfni til að:
- taka ábyrgð á eigin undirbúningi, búnaði og heilsu í krefjandi vetraraðstæðum
- vinna í hóp og sýna tillitsemi og samvinnu í tengslum við ferðalög og útivist
- meta eigin getu og takmörk á skíðum og við erfiðari veður aðstæður
Námsmat
Virkni og þátttaka í undirbúningsfundum og í sjálfri skíðaferðinni. Val á réttum búnaði (matur og fatnaður) sem tryggir rétta upplifun og þátttöku í ferðinni. Lokaeinkunn áfanga er staðið/fallið.