Nýstúdent úr MB bar blómsveig að minnisvarða Jóns Sigurðssonar

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Eyrún Freyja Andradóttir, nýstúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar var þess heiðurs aðnjótandi að taka þátt í hátíðarhöldunum á Austurvelli í tilefni af 82 ára afmæli lýðveldisins. Með henni í athöfninni var Daniel do Carmo Njarðarson, nýstúdent frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla,

Sú hefð hefur skapast að tveir nýstúdentar, einn frá hvorum skóla, eru valdir ár hvert á þjóðhátíðardaginn 17. júní til að bera blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Forsetisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir, lagði síðan blómsveiginn að minnisvarðanum við hátíðlega athöfn.

Við í MB erum afar stolt og ánægð með að Eyrún hafi verið valin til að taka þátt í þessari hátíðlegu athöfn á þjóðhátíðardegi Íslendinga.