SPÆN1TM05 – Spænska

Námsgrein: Spænska

Heiti
Spænska 2- a2 - tungumál og menning
Þrep
1
Einingafjöldi
5
Undanfari
Að nemandi hafi lokið við 5 einingar í spænsku á 1. þrepi.
Í boði
Vor

Meginmarkmiðið er að nemendur auki grunnþekkingu sína í spænsku í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna (A2) og geti notað tungumálið til þess að skapa fjölbreytt verkefni sem miðast að áhugasviðum þeirra. Í áfanganum er lögð áhersla á hlustun, talæfingar og lestur á stuttum textum. Nemendur æfa jafnt lestur, ritun, hlustun og tal. Ólíkar leiðir eru notaðar til þess að æfa nemendur í málinu s.s. vettvangsferðir, leikir, gögn af neti o.fl). Námið er einstaklingsmiðað en markmiðið er að nemendur beri ábyrgð á eigin námi.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
  • grundvallarþáttum spænsks málkerfis: framburði, áherslu og einfaldri setningaskipan
  • spænskumælandi löndum með áherslu á bókmenntir
  • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli
  • að efla orðaforða sinn í spænsku

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja frásagnir og umræður um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
  • taka þátt í samræðum um afmörkuð undirbúin efni og um efni sem hann þekkir
  • miðla upplýsingum um málefni sem hann hefur kynnt sér
  • skrifa fremur stutta samfellda texta svo sem samantektir, endursagnir og frásagnir af eigin reynslu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meðtaka daglegt mál, s.s. samræður og fjölmiðlaefni ef hann þekkir til efnisins og talað er skýrt
  • tjá skoðun sína á lesnum texta …sem er metið með… verkefnum, prófum og munnlegri framsögn
  • ræða við aðra af nokkru öryggi um efni sem hann þekkir vel
  • miðla upplýsingum um undirbúið efni í ræðu og riti
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra og beita til þess viðeigandi orðaforða og málvenjum
  • nýta á ólíkan hátt efni texta af ýmsum toga …sem er metið með… verkefnum
  • miðla hugmyndum og verkefnum með fjölbreyttum stafrænum hætti

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.