Menntaskóli Borgarfjarðar (MB) er framhaldsskóli í Borgarnesi sem hefur frá stofnun lagt áherslu á nýbreytni í kennsluháttum, verkefnamiðað nám, leiðsagnarmat og náið samstarf við samfélagið. Á tæpum tveimur áratugum hefur skólinn þróast úr nýjum og tiltölulega litlum framhaldsskóla, í skóla með fjölbreytt námsframboð þar sem nemendur koma víðs vegar af landinu.
Upphaf skólastarfs í Menntaskóla Borgarfjarðar 2006 – 2008
Menntaskóli Borgarfjarðar var formlega stofnaður 4. maí 2006 með staðfestingu menntamálaráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, sem um leið tók fyrstu skóflustunguna að skólabyggingunni. Þann 11. júlí 2006 samþykkti hluthafafundur formlega tilveru skólans og kosin var stjórn sem tók við af undirbúningsstjórn skólans. Þann fyrsta ágúst 2006 tók verkefnisstjóri til starfa við undirbúning skólastarfs og 1. febrúar 2007 tók skólameistari til starfa ásamt aðstoðarskólameistara. Kennarar voru síðan ráðnir til starfa frá 1. júní 2007 og skólinn settur við formlega athöfn í Skallagrímsgarði í Borgarnesi þann 22. ágúst 2007.
Formlegt skólastarf hófst fimmtudaginn 23. ágúst 2007 með sameiginlegri ferð nemenda og starfsfólks í Skagafjörðinn. Þar gisti hópurinn eina nótt, fór í flúðasiglingu og tók þátt í hópefli. Kom þessi ferð í stað busavígslu og það orðinn fastur liður að fara í haustferð og taka þannig hlýlega á móti nýnemum.
Skólameistari/aðstoðarskólameistari
Ársæll Guðmundsson ráðinn og tók til starfa 1. ágúst 2006. Þann 1. febrúar var Lilja S. Ólafsdóttir ráðin aðstoðarskólameistari.
Stjórn
Undirbúningsstjórn skipuð 4. maí 2006. Helga Halldórsdóttir, Finnbogi Rögnvaldsson, Sveinbjörn Eyjólfsson, Gísli Kjartansson, Sigurður Már Einarsson. Þessi stjórn starfaði fram að hluthafafundinum 11. júlí 2006 en þá var formlega kosin stjórn fyrir skólann. Skólinn var frá upphafi rekinn sem einkahlutafélag með fjölmarga hluthafa úr samfélaginu. Formaður stjórnar var kosinn Torfi Jóhannesson, sveitarstjórnarfulltrúi Borgarbyggðar en aðrir sem kosnir voru í stjórn á fyrsta hluthafafundi skólans voru: Sigurður Már Einarsson, Bergur Þorgeirsson, Guðrún Kristjánsdóttir og Magnús Árni Magnússon.
Skólanefnd
Fyrsta skólanefnd skipuð í ágúst 2006. Formaður Bernhard Þór Bernhardsson, aðrir í skólanefnd voru: Kristján Þór Gíslason, Sóley Sigurþórsdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir og Helena Guttormsdóttir. Hlutverk skólanefndar var það helst að vinna með stjórn og skólameistara að uppbyggingu faglegs skólastarfs. Þegar fram liðu stundir var skólanefndin lögð niður og tók stjórn við hlutverki hennar.
Starfsfólk
Um vorið 2007 var auglýst eftir kennurum til starfa við skólann og bárust margar umsóknir um hvert starf. Fyrsti kennarafundurinn var haldinn í Landnámssetrinu þann 1. júní 2007 og var strax ljóst að mikill hugur var í hópnum og allir tilbúnir í þetta frumkvöðlastarf sem beið framundan – að ýta nýjum skóla úr vör. Á þessum fyrsta kennarafundi voru þau:
Ársæll Guðmundsson, skólameistari
Lilja S. Ólafsdóttir, aðstoðarskólameistari
Bylgja Mist Gunnarsdóttir, umsjón með starfsbraut
Guðmundur Karl Bjarnason, umsjón með upplýsingatækni
Ívar Örn Reynisson, fagstjóri samfélagsgreina
Ingibjörg Ingadóttir, fagstjóri tungumála
Þóra Árnadóttir, fagstjóri raungreina og stærðfræði
Ásdís Haraldsdóttir, íslenskukennari
Sigfríð Guðný Theódórsdóttir, stærðfræðikennari
Sigurður Örn Sigurðsson, íþróttakennari
Áður en fyrsta skólaárið hófst hafði fleira starfsfólk bæst í hópinn þ.e.:
Veronika G. Sigurvinsdóttir, skólafulltrúi
Elín Kristjánsdóttir, náms- og starfsráðgjafi
Eva Karen Þórðardóttir, danskennari
Gina Bjarnason, ræstingar
Húsnæði
Í janúar 2006 hafði verið stofnaður stýrihópur til undirbúnings stofnunar framhaldsskóla í Borgarbyggð. Á fundi stýrihópsins í febrúar 2006 kemur fram að ráðgert er að reisa 1300 fermetra mennta- og menningarhús. Á þann fund mæta arkitektar (Steinþór Kári Kárason og Ásmundur Hrafn Sturluson) frá arkitektarstofunni Kurt og Pí, sem fengnir höfðu verið til að koma með tillögur að húsinu. Þarna er þegar komin mynd á hinn nýja framhaldsskóla en margt átti eftir að breytast. Mennta- og menningarhúsið varð að lokum 3200 fm en þar af er rúmlega 650 fm kjallari. Húsið sjálft stendur ekki á þeim stað þar sem skóflustungan var tekin heldur mun sunnar á lóðinni.
Haustið 2006 var síðan skipuð byggingarnefnd: Helga Halldórsdóttir formaður, Ólafur Sveinssson og Magnús Árni Magnússon, einnig sat skólameistari alla fundi byggingarnefndar. Byggingarstjóri framan af Guðmundur Eiriksson en á síðari stigum Jón Ágúst Guðmundsson.
Merki skólans
Merki skólans var talið best hannaða merki ársins 2007 í samkeppni grafískra hönnuða. Það voru hönnuðurnir Hildigunnur Gunnarsdóttir og Snæfríð Þorsteinsdóttir sem hönnuðu merkið.
Samkeppni um nafn á hátíðarsal
Stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar efndi til samkeppni meðal almennings um nafn á hátíðarsal skólans vorið 2008. Tilkynnt um vinningsnafnið, Hjálmaklettur, á opnunarhátíð skólahússins í ágúst 2008. Vinningshafi var Guðrún Jónsdóttir.
Brautskráning
Í júní 2009 voru fyrstu nemendurnir brautskráðir frá MB. Þeir voru Arnar Guðjónsson, Elísabet Fjelsted og Thelma Eyfjörð Jónsdóttir. Síðan þá hafa 487 nemendur útskrifast frá skólanum, megin þorri eftir þriggja ára nám.
Skólameistarar
Ársæll Guðmundsson, ráðinn 2006 (verkefnastjóri), 2007 – 2010 (áramót)
Lilja S. Ólafsdóttir, skólameistari vorönn 2011
Kolfinna Jóhannesdóttir, 2011 – 2014
Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir, 2014 – 2019
Lilja S. Ólafsdóttir aðstoðarskólameistari, staðgengill skólameistara haustönn 2019
Bragi Þór Svavarsson, 2020 (áramót)
Nám og kennsla
Frá upphafi undirbúnings Menntaskóla Borgarfjarðar árið 2007 var lögð á það áhersla að skólinn færi ótroðnar slóðir í starfsháttum og yrði í fremstu röð framhaldsskóla í uppeldi og kennslu. Stjórn skólans ákvað fljótlega að í boði yrði nám á fjórum námsbrautum til að byrja með þ.e. starfsbraut, almennri braut, félagsfræðabraut og náttúrufræðibraut. Tvær síðastnefndu brautirnar eru til stúdentsprófs. Meðal nýjunga í skólastarfinu má nefna að stúdentsprófi ljúka nemendur að jafnaði á þremur árum og áhersla er lögð á leiðsagnarmat í stað hefðbundinna prófa. Formleg annarpróf eru ekki haldin í desember og maí og kennslutími á önn var því fjórum til fimm vikum lengri en almennt gerðist í framhaldsskólum.
Annaskipti voru í janúar (184 dagar) til ársins 2016. Annirnar jafn langar. Brautskráning var í júní. Nýir kjarasamningar við KÍ skólaárið 2016 – 2017 þá varð breyting á fjölda nemendadaga, urðu nú 180 dagar í samræmi við aðra skóla landsins og annaskipti urðu um áramót.
Kennsluhættir og námsmat
Kennsla skólans tekur mið af verkefnamiðuðu námi. Fyrirlestrar hafa t.d. aldrei verið sérstaklega áberandi í skólanum en umræðutímar, hópavinna og verkefnatímar eru þeir þættir sem eru mest notaðir í skólastarfinu. Frá upphafi skólans hefur verið lögð áhersla á fjölbreytt verkefnaskil þar sem sköpunargleði nemenda fær að njóta sín. Hluti af námi nemenda hefur frá upphafi verið að vinna að lokaverkefni við skólann. Nemendur eru skráðir í sérstakan áfanga þar sem þeir vinna með leiðbeinanda að sjálfstæðum verkefnum.
Í MB eru fjölbreyttir kennsluhættir og töluverð notkun upplýsingatækni. Námsmat byggir á leiðsagnamati en í því felst að námsmat á sér stað jafnt og þétt á námstíma nemenda. Nemendur fá einkunn fyrir fjölbreytt verkefni og próf. Einkunnir fyrir öll verkefni og próf safnast saman til lokaeinkunnar sem gefin er út í lok annar. Á fimm vikna fresti á svokölluðum vörðum er notast við þriggja stiga skala; mjög gott – í lagi – ófullnægjandi, ásamt skriflegri endurgjöf í formi umsagnar um stöðu náms og ástundun í öllum áföngum.
Sérstaða og áherslur
Fyrstu árin mótaðist sú sérstaða sem síðar hefur orðið eitt helsta einkenni Menntaskóla Borgarfjarðar. Verkefnamiðað nám, leiðsagnarmat, notkun upplýsingatækni, gott námsframboð, samstarf við grunnskóla og samfélagið sjálft voru mikilvægir þættir í skólastarfinu. Markmiðið var að nemendur yrðu virkir þátttakendur í eigin námi og öðluðust hæfni til að takast sjálfstætt á við viðfangsefnin.
Sérstaða og áherslur hafa síðan breyst með þróun skólans.
2007
Sérstaða Menntaskóla Borgarfjarðar er eftirfarandi:
- að jafnaði ljúka nemendur stúdentsprófi á þremur árum
- skólaárið er 184 starfsdagar nemenda í stað 175 í hefðbundnum skólum
- formleg annarpróf í desember og maí eru ekki til staðar
- notkun leiðsagnarmats og símat er viðhaft í öllum áföngum
- nemdur fá endurgjöf á nám sitt og vinnu á fimm vikna fresti (Vörður)
- allir nemendur og kennarar eru með fartölvur og tengdir internetinu í skólanum
- samkvæmisdans er skylda á öllum brautum
- þátttaka í þróunarverkefninu Borgarfjarðarbrúin og samvinna við grunnskólana í Borgarbyggð er mikil
- þrískipting kennslustunda í leiðsagnatíma, fagtíma og vinnutíma
- skólinn notast við opin hugbúnað í námi og kennslu
- félagsaðstaða nemenda er einnig ungmennahús Borgarbyggðar
2020
Menntaskóli Borgarfjarðar hefur leitast við að marka sér sérstöðu með eftirfarandi hætti:
- að leggja áherslu á jákvæðan lífsstíl og andlegt heilbrigði með persónulegri þjónustu við nemendur
- að skipulag náms sé fjölbreytt, einstaklingsbundið og sveigjanlegt
- að áfangakeðjan STÍM sé hluti af öllum stúdentsbrautum
- að stafræn hönnun og miðlun sé áhersluþáttur í flestum áföngum skólans
- að bjóða uppá námsbrautina Náttúrufræðibraut – búfræðisvið í samstarfi við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri
- að vera í nánu samstarfi við fyrirtæki og stofnanir í nærumhverfi sínu
- að vera í fararbroddi hvað varðar námsmat og endurgjöf til nemenda
- að nemendur vinni lokaverkefni út frá áhugasviði og geti skilað vinnu sinni með fjölbreyttum hætti
MB er persónulegur skóli. Frá því að vera 67 staðnemendur árið 2007, hafa þeir mest farið í um 180 staðnemendur gerir það að verkum að kennarar og nemendur eiga auðvelt með samskipti sín á milli og útskrifaðir nemendur hafa talið þetta til eins helsta kosts skólans, hversu auðvelt er að tala við kennarana og vera meira en kennitala á blaði.
Einkunnarorð MB
Einkunnarorð MB eru; Sjálfstæði – Færni – Framfarir og kristallast viðhorf vinnunnar í skólanum í þessum kjörorðum.
Sjálfstæði: Í Menntaskóla Borgarfjarðar er lögð áhersla á að efla sjálfstæði, frumkvæði og skapandi hugsun meðal nemenda. Áhersla er lögð á sjálfstraust og sjálfstæði í vinnubrögðum. Skólinn hvetur nemendur til að setja sér sín eigin markmið með náminu.
Færni: Í Menntaskóla Borgarfjarðar er lögð áhersla á færni og kunnáttu nemenda á fjölbreyttum sviðum. Nemendur eru þjálfaðir í þekkingarleit. Áhersla er á að efla nemendur sem einstaklinga og námsmenn þannig að þeir verði færari um að takast á við verkefni við krefjandi aðstæður.
Framfarir: Í Menntaskóla Borgarfjarðar er lögð áhersla á að með auknu sjálfstæði nemenda og færni verði stuðlað að sem mestum framförum nemandans. Skólinn hvetur nemendur til góðrar ástundunar, vandaðra vinnubragða, virkni í námi og félagslífi.
Borgarfjarðarbrúin
Í febrúar 2006 kom fram vilji til að aðilar fari í samstarf um að undirbúa nemendur grunnskólanna í Borgarbyggð undir það að stunda nám í þriggja ára framhaldsskóla. Samstarfsverkefni Borgarbyggðar, MB og menntamálaráðuneytis, sem fékk heitið Borgarfjarðarbrúin, fór síðan formlega af stað vorið 2007 til þriggja ára.
Fjarnám / dreifnám
Sumarið 2013 var stofnuð framhaldsdeild í Búðardal og var dreifnámið samstarfsverkefni MB og Dalabyggðar. Dreifnámið var skipulagt þannig að nemendur komu í MB í staðlotur þrisvar á önn. Starfsmaður deildarinnar í Búðardal var Jenny Nilsson. Á haustönn voru skráðir 8 nemendur til náms við deildina. Deildin starfaði í tvö skólaár en var lögð niður árið 2015 þar sem aðskókn í námið dróst verulega saman.
Á liðnum áratug hefur orðið breyting á fjar- og dreifnámi við skólann. Með þátttöku MB í Fjarmenntaskólanum (nú Samland) hefur hópur þeirra nemenda sem kjósa að vera í fjarnámi við skólann stækkað. Fjarnámið í þeirri mynd sem það er í dag hófst vorið 2016 þá stunduðu 21 nemandi fjarnám. Í dag, 10 árum síðar er fjöldi fjarnema orðinn 87.
Nemendur / félagslíf
Til að hjálpa nemendum að koma félagslífinu í gang var Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari ráðinn til starfa haustið 2007. Hann starfaði með nemendum fyrsta skólaárið. Fyrsta stjórn nemendafélagsins var kosinn: Rakel Sif Jónsdóttir formaður, Rakel Ösp Björnsdóttir gjaldkeri, Margrét Ársælsdóttir ritari og Helga Margrét Heiðarsdóttir skemmtanastjóri.
Frá upphafi skólastarfs hafa nemendur byggt upp allnokkrar hefðir í kringum félagslífið. Skólinn hefur alltaf tekið þátt í West Side, sem er samstarfsverkefni skólanna þriggja á Vesturlandi. MB, FSN og FVA. Þá hittast nemendur og keppa milli sín í íþróttum og getspeki og ljúka svo kvöldinu með balli.
Áskorendadagar hafa verið haldnir frá haustinu 2007 þar sem nemendur og starfsfólk keppa á milli sín í ýmsum greinum bæði hefðbundnum og óhefðbundnum.
Útgáfa skólablaðsins Eglu frá árinu 2012.
Leikfélag Menntaskólans hefur verið öflugt og á hverju skólaári hefur verið sett upp leikrit, síðustu ár í samstarfi við Tónlistarskóla Borgarfjarðar.
Árshátíð nemenda haldin í mars á hverju ári.
Söngkeppni framhaldsskólana – NFMB sendir sinn eða sína fulltrúa til þátttöku.
Gettu betur – spurningakeppni framhaldsskólana. NFMB ekki alltaf tekið þátt.
Stoðþjónusta
Náms- og starfsráðgjafi (Elín Kristjánsdóttir) ráðin í 25% stöðu strax við upphaf skólans 2007. Í dag í 80% stöðu.
Hjúkrunarfræðingur – í samvinnu við HVE. Í byrjun höfðu nemendur aðgang að hjúkrunarfræðingi á Heilsugæslunni í Borgarnesi en nú er hjúkrunarfræðingur með viðveru í skólanum að jafnaði einu sinni í viku.
Sálfræðiþjónusta – Frá hausti 2016 hafa Menntaskóli Borgarfjarðar og Stéttarfélag Vesturlands gert með sér samkomulag um sálfræðiþjónustu fyrir nemendur skólans. Tilvísun frá náms- og starfsráðgjafa MB veitir nemanda rétt á endurgreiðslu/styrk allt að fjórum sálfræðitímum á skólaárinu. MB greiðir fyrsta tímann og Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands næstu þrjá, að hámarki.
Nemendagarðar
- MB gerir húsaleigusamning við Hostelið – farfuglaheimili í Borgarnesi skólaárið 2013 – 2014. Nemendafjöldi ca. 5 – 8
- Haustið 2014 voru nemendagarðar við Brákarbraut teknir í notkun. Tvær íbúðir í samstarfi við Borgarbyggð, voru keyptar í ágúst – nemendafjöldi 8 (4+4). Seldar vorið 2026.
- Í apríl 2025 var skrifað undir samning við Brákarhlíð fasteignafélag ehf um nýja nemendagarða við Borgarbraut 63. Þeir voru teknir í notkun í ágúst 2026. 12 íbúðir með pláss fyrir 17 nemendur.
Með stofun nemendagarða varð auðveldara fyrir nemendur úr uppsveitum Borgarfjarðar og úr nágrannasveitarfélögum að stunda nám við skólann. Húsnæði fyrir nemendur hefur því ætíð verið mikilvægur hluti af því að gera Borgarnes að raunhæfum valkosti fyrir nemendur utan svæðis.
Almenningssamgöngur 2021
Tilraunaverkefni í samþættu leiðarkerfi í Borgarbyggð hófst með formlegum hætti miðvikdaginn 21. október þegar fyrsta ferðin var farin frá Kleppjárnsreykjum í Borgarnes, með viðkomu á Hvanneyri. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi fengu styrk til tveggja ára frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu til að koma verkefninu í framkæmd. Verkefnið var samstarfsverkefni SSV, Menntaskóla Borgarfjarðar og Vegagerðarinnar. Til þess að verkefnið gengi upp gerði Borgarbyggð breytingar á reglum um skólaakstur, þá bætti Vegagerðin og Strætó við leiðum í leiðakerfi sínu.
Þetta nýja fyrirkomulag breytti miklu fyrir nemendur MB úr uppsveitum Borgarbyggðar.
Aðalnámskrá framhaldsskóla
Ný aðalnámskrá framhaldsskóla 2011 – innleiðing
Frá upphafi skólastarfs starfaði skólinn eftir drögum að nýrri aðalnámskrá sem kom svo út árið 2011.
Námsbrautir (námsframboð)
Á árunum 2010 – 2012 hélt skólinn áfram að þróa námsframboð. Árið 2012 urðu verulegar breytingar:
- Á náttúrufræðibraut bættist við búfræðisvið í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
- Íþróttasvið var tekið upp innan félagsfræði – og náttúrufræðibrauta.
- Árið 2015 var íþróttasviðið lagt niður sem hluti af öðrum brautum og sérstök íþróttafræðibraut á tveimur sviðum (félagfræða- og náttúrufræðisviði) varð til.
- Haustið 2024 voru sviðin tvö sameinuð í eitt og úr varð íþróttabraut án sviða.
Um þetta leyti hafði MB því þróast úr upphaflegum fjórum námsbrautum yfir í fjölbreyttara námsframboð.
Árið 2014 var unnið áfram að innleiðingu nýrrar aðalnámskrár og námsbrautir og áfangalýsingar endurskoðaðar.
2020 – nýr kafli hefst
Árið 2020 tímamót í þróun MB. Skólinn hélt þá stafræna ráðstefnu sem bar heitið „Menntun fyrir störf framtíðar“. Þar var megin spurningin hvernig menntun ætti að undirbúa ungt fólk fyrir hraðar breytingar samfélagsins? Þessi ráðstefna varð upphafið að stærra þróunarverkefni. Árið 2021 var skipaður starfshópur sem vann markvisst að því að móta nýja stefnu fyrir Menntaskóla Borgarfjarðar.
Markmiðin voru meðal annars að:
- Efla sérstöðu skólans
- Fjölga nemendum
- Laða að fjölbreyttari hóp nemenda
- Tengja skólann betur við samfélagið og atvinnulífið
- Þróa nám og kennsluaðferðir fyrir framtíðina
Niðurstaða hópsins varð m.a. að MB ætti að byggja sérstöðu sína á STEAM, skapandi námi, leiðsagnarmati og verkefnamiðaðri vinnu. Þarna varð ákveðin áherslubreyting, en MB átti áfram að vera góður bóknámsskóli sem undirbýr nemendur fyrir háskólanám en jafnframt að undirbúa þá fyrir lífið, atvinnulífið og framtíðina.
Vorönn 2021 – vinnustofur
Á vorönn 2021 var lagt af stað með þó nokkrar breytingar á stundatöflu og fyrirkomulagi kennslunnar. Bæði fóru kennslustundir úr því að vera að jafnaði 2*40 mínútur í 1*60 sem og að nú eru vinnustundir tvisvar í viku. Við þessar breytingar á skipulagi opnuðust möguleikar á hefja kennslu síðar en venjan hefur verið. Nú á vorönn hefst öll kennsla klukkan 09:00 á morgnana. Enn varð breyting á fyrirkomulagi vinnustofa, í stað tveggja daga var ákveðið að einn dagur í viku væri heppilegri og varð miðvikudagur fyrir valinu. Þessi breyting mæltist mjög vel fyrir bæði hjá nemendum og kennrum og mæting nemenda var afbragðsgóð.
Haustönn 2022 – endurskoðun námsbrauta
Haustið 2022 hófst kennsla á endurskoðuðum námsbrautum. Ein stærsta breytingin var að STEAM – nám varð hluti af öllum brautum skólans. STEAM tengir saman vísindi, tækni, listsköpun og stærðfræði. Stafræn hönnun og miðlun var fléttuð inn í flesta áfanga skólans. Skólinn lagði þannig aukna áherslu á skapandi hugsun, tækni, nýsköpun og hæfni sem nýtist í síbreytilegu samfélagi. MB varð fyrsti skóli landsins til þess að innleiða þessa áfangakeðju.
Samhliða þessum nýja áfanga við skólann var Kvika, skapandi rými tekið í notkun. Í Kvikunni eru m.a. 3D prentarar, laserskerarar, vínilskeri, pressur, saumavélar, mynd og hljóðver og rými fyrir listsköpun.
Lífsnám varð líka kjarnaáfangi á öllum brautum. Efnisþættir lífsnámsins eru:
- Geðheilbrigði
- Fjármál
- Kynheilbrigði
- Sjálfbærni
- Mannréttindi og jafnrétti
Sama ár (2022) hlaut MB hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna fyrir framsækna endurskoðun námskrár.
Á árunum 2022 – 2024 fór nýja hugmyndafræðin smám saman að verða sýnileg í daglegu skólastarfi.
Árið 2024 var Kvikan orðin mikilvægur hluti af náms- og kennsluumhverfi skólans. Áherslan var áfam á: skapandi nám, stafræna hönnun, nýsköpun og sveigjanlegt námsumhverfi.
2025 – 2026
Haustið 2025 varð mikil fjölgun nemenda. Í september voru 219 nemendur skráðir í skólann og þar af 140 í staðnámi. Þróunin hélt áfram, allar stúdentsbrautir voru endurskoðaðar og nýjar uppfærðar brautir tóku gildi haustið 2026. Þar var helsta nýjungin að Menntaborgari varð skylduáfangi á öllum brautum. Áfanginn er ætlaður nemendum við upphaf skólagöngu og fjallar meðal annars um það að vera nemandi í framhaldsskóla og þátttakandi í samfélaginu.
Árið 2026 var undirritaður fimm ára þjónustusamningur við mennta- og barnamálaráðuneytið, sem skapaði meiri festu í rekstrinum og betri forsendur fyrir áfamhaldandi uppbyggingu.
Að lokum
Saga Menntaskóla Borgarfjarðar frá 2006 til 2026 einkennist þannig af stöðugri þróun. Fyrstu skrefin voru tekin með stofnun nýs framhaldsskóla í Borgarnesi árið 2006 og upphafi kennslu árið 2007. Strax frá upphafi var lögð áhersla á nýja kennsluhætti, leiðsagnarmat og verkefnamiðað nám. Á næstu árum þróaðist skólinn áfram í gegnum samstarf við aðra skóla, háskóla og samfélagið og námsframboðið varð sífellt fjölbreyttara.
Frá um 2019 hefur vöxtur skólans orðið sérstaklega sýnilegur í fjölgun nemenda og auknu námsframboði. Innleiðing STEAM-náms frá 2022 markaði mikilvægan áfanga í skólaþróuninni og tengdi enn sterkari böndum saman vísindi, tækni, sköpun og stærðfræði. Árið 2024 voru yfir 200 nemendur skráðir á haustönn og árið 2026 var námsframboð enn endurskoðað.
Þróun Menntaskóla Borgarfjarðar endurspeglar því að mörgu leyti þróun framhaldsskólastigsins á Íslandi á síðustu tveimur áratugum: áherslan hefur færst frá hefðbundinni miðlun námsefnis yfir í aukna áherslu á hæfni, verkefnavinnu, stafræna tækni, sjálfstæði nemenda og tengsl skóla við samfélag og atvinnulíf. Sérstaða MB felst þó fyrst og fremst í því að þessar áherslur voru hluti af upphaflegri sýn skólans og hafa síðan verið þróaðar áfram í takt við breyttar þarfir nemenda og samfélags.