SPÆN1MS05 – Spænska

Námsgrein: Spænska

Heiti
Spænska 3- a2/b1 - tungumál og menning
Þrep
1
Einingafjöldi
5
Undanfari
Að nemandi hafi lokið við 10 einingar í spænsku á 1. þrepi
Í boði
Haust

Byggt er markvisst á þeirri kunnáttu sem nemendur hafa nú þegar tileinkað sér ritun í samræmi við þrep A2 í evrópska tungumálarammanum. Textar verða smám saman lengri og þyngri og meginmarkmið er að auka og bæta orðaforða og tjáningarhæfni í spænsku og efla sjálfstæð vinnubrögð nemenda í náminu. Áhersla verður lögð á að nemendur tjái sig sem mest á spænsku í töluðu og rituðu máli, og á fjölbreytta og skapandi verkefnavinnu þar sem tekið er tillit til áhuga nemenda eins mikið og unnt er. Nemendur geri sér ljósa eigin ábyrgð í málanámi og átti sig á mikilvægi eigin frumkvæðis og vinnu. Við lok áfangans eiga nemendur að vera komnir að mörkum A2 og B1 samkvæmt evrópska matsrammanum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
  • Nokkrum helstu grundvallarþáttum spænsks málkerfis svo sem framburði, tónfalli og einfaldri setningaskipan
  • Spænskumælandi löndum og fengið innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þjóðanna
  • Einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Fylgjast með frásögnum eða samtölum um almenn efni eða sérhæfðari málefni sem hann þekkir þar sem talað er skýrt og áheyrilega.
  • Lesa og skilja ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um almennt efni sem fjallað er um í áfanganum.
  • Fylgja söguþræði í einföldum bókmenntatextum.
  • Taka þátt í almennum samræðum um efni sem hann þekkir.
  • Segja frá á skýran hátt í nútíð og þátíð og halda stutta kynningu á undirbúnu efni með því að beita orðaforða, setningagerð og framburði á sem réttastan hátt
  • Skrifa samfellda texta um ýmis efni sem hann þekkir, t.d. mannlýsingar, lýsingar á stöðum, atburðum og umhverfi og tjá eigin skoðanir
  • Nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Lesa og greina margskonar gerðir texta og vinna úr þeim á fjölbreyttan hátt.
  • Tileinka sér aðalatriðin í stuttum og/eða einföldum rauntextum af ýmsu tagi og tjá eigin skoðanir og hugmyndir.
  • Segja frá eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu.
  • Takast á við flestar algengar aðstæður þar sem reynir á málkunnáttu og orðaforða.
  • Skrifa um hugðarefni sín og áhugamál, ýmis málefni og atburði, ímyndaða eða raunverulega, í þátíð og nútíð
  • Tjá sig um atburði með því að beita nútíð, framtíð og liðinni tíð og halda kynningu á undirbúnu efni með því að beita orðaforða, setningagerð og framburði á sem réttastan hátt.
  • Skrifa samantekt byggða á tilteknu efni, s.s. kvikmynd, blaðagrein, eða sögu.
  • Miðla verkefnum og hugmyndum með fjölbreyttum stafrænum hætti.

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafn óðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.