Í áfanganum er lagður grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði og byggt er ofan á grunn sem nemendur hafa lært í grunnskóla. Efni áfangans er talnareikningur, algebra og jöfnur.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- uppsetningu og lausn á jöfnum og formúlum
- ýmsum reglum og beitingu þeirra
- mengjahugtökum
- algebru, svo sem liðun og þáttun
- eiginleikum beinnar línu í hnitakerfi, hallatölu og skurðpunktum við ása hnitakerfisins
- notkun upplýsingatækninnar við lausn verkefna
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- setja upp og leysa jöfnur og formúlur
- nota mismunandi reglur stærðfræðinnar þegar við á
- vinna með tugveldisrithátt og mælinákvæmni til að bera saman tölur
- nota mengjatákn
- liða, þátta og reikna veldi
- nota ýmis forrit við lausn verkefna
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita jöfnum og formúlum á réttan hátt við lausn ýmissa verkefna
- skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
- beita skipulögðum aðferðum við leit á lausnum á þrautum
- að miðla lausnum á verkefnum með hjálp upplýsingatækninnar
Námsmat
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.