STÆR1SF04 – Stærðfræði

Námsgrein: Stærðfræði

Heiti
Stærðfræði, fornám 2
Þrep
1
Einingafjöldi
4
Undanfari
Einn stærðfræðiáfangi á 1. hæfniþrepi
Í boði
Vor

Í áfanganum er haldið áfram að byggja ofan á grunn sem nemendur hafa lært í grunnskóla. Efni áfangans er algebra, hnitakerfi, föll, gildistafla og lausnarformúlan.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hnitakerfi, hallatölum, skurðpunktum og öðru sem því tengist
  • þáttun og reikna uppúr sviga
  • hvernig leysa á annars stigs jöfnu með þáttun eða lausnarformúlu
  • hvernig eigi að nota gildistöflu við teikningar í hnitakerfi
  • hvernig ýmiskonar forrit eru notuð við lausn verkefna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita lausnarformúlunni á annars stigs jöfnur
  • teikna fleygboga inní hnitakerfi með því að nota gildistöflu
  • teikna beina línu inní hnitakerfi með því að nota gildistöflu
  • nota upplýsingatæknina við lausn á verkefnum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • sjá að ferlar sem settir hafa verið í hnitakerfi eru í raunveruleikanum
  • útskýra hvers vegna við nota hnitakerfi til að skýra ferla sem við nota dagsdaglega
  • gera sér grein fyrir að jöfnur eru ferlar
  • miðla þekkingu sinni með hjálp upplýsingatækninnar

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.