STÆR2BB05 – Stærðfræði

Námsgrein: Stærðfræði

Heiti
Hornaföll, algebra og margliður.
Þrep
2
Einingafjöldi
5
Undanfari
Að nemandi hafi lokið einum stærðfræðiáfanga á 2. þrepi.
Í boði
Vor

Þáttun, hornaföll, annars stigs jöfnur, rótarjöfnur, algildisjöfnur, fleygbogar og föll.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Frumþáttun.
  • Þáttun og liðun algebrustæða .
  • Reikningi með algebrubrot.
  • Veldareglum og sambandi milli velda og róta
  • Annars stigs og hærra stigs jöfnum
  • Algildisjöfnum, rótarjöfnum og ójöfnum
  • Margliðum og margliðudeilingu.
  • Fallhugtakinu, skilgreiningarmengi og myndmengi.
  • Margliðuföllum og ræðum föllum.
  • Grafi annars stigs margliðu.
  • Hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi.
  • Notkun stafrænna miðla við lausn og framsetningu verkefna.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita táknmáli s.s: Reglum um stærðfræðilega framsetningu viðkomandi námsefnis og geti túlkað það sem felst í táknmáli á mæltu máli.
  • Frumþátta
  • Vinna með algebrubrot.
  • Nota veldareglur
  • Leysa margliðujöfnur og ójöfnur, algildisjöfnur og rótarjöfnur.
  • Kanna fleygboga
  • Túlka myndrænt jöfnur og ójöfnur
  • Nýta grafískan vasareikni til lausnar verkefna
  • Beita hornafræði í rétthyrndum þríhyrningi.
  • Nýta stafræna miðla við úrlausn verkefna.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skrá lausnir sínar skipulega og útskýra hugmyndir sínar og verk í mæltu og máli.
  • Greina og hagnýta upplýsingar á sviði stærðfræði á þrepinu
  • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
  • Skilja hverskonar spurningar leiða til stærðfræðilegra viðfangsefna, spyrja slíkra spurninga og gera sér grein fyrir hver hugsanleg niðurstaða geti orðið.
  • Átta sig á og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna.
  • Beita gagnrýnni og skapandi hugsum og innsæi við lausn verkefna og þrauta.
  • Klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka lausnina.
  • Skilja röksemdir, þar með taldar sannanir í námsefni og beita einföldum röksemdafærslum.
  • Leysa verkefni í öðrum námsgreinum : s.s eðlisfræði og hagfræði.
  • Miðla hugmyndum og lausnum með stafrænum hætti.

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.