STÆR2TL05 – Stærðfræði

Námsgrein: Stærðfræði

Heiti
Tölfræði og líkindareikningur
Þrep
2
Einingafjöldi
5
Undanfari
Að nemandi hafi lokið einum stærðfræðiáfanga á 2. þrepi.
Í boði
Vor

Fjallað er um töluleg gögn og myndræna framsetningu á þeim með myndritum, einkennistölum fyrir gagnasöfn, dreifingu og undirstöðuatriði líkindareiknings. Þegar grunnskilningur er nægur verður áhersla lögð á raunveruleg verkefni sem tengjast málefnum í samfélaginu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • undirstöðuhugtökum úr lýsandi tölfræði
  • helstu hugtökum um gagnasöfn, s.s. tíðasta gildi, venjulegt meðaltal, vegið meðaltal og miðgildi
  • helstu hugtökum um dreifingu gagnasafns, s.s. seilingu, meðalfrávik, staðalfrávik og hlutfallslegt frávik
  • líkindahugtakinu og hugtökunum útkoma, atburður og útkomurúm
  • hugtökunum samantekt og umröðun
  • fylgnihugtakinu
  • nýtingu stafrænnar tækni í vinnu verkefna.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna tíðnitöflur úr gefnu gagnasafni
  • að setja tíðnidreifingu fram á myndrænan hátt
  • reikna helstu gildi sem lýsa gagnasöfnum, s.s. tíðasta gildi, venjulegt meðaltal, vegið meðaltal og miðgildi
  • reikna helstu gildi um dreifingu gagnasafns, s.s. seilingu, meðalfrávik, staðalfrávik og hlutfallslegt frávik
  • nota töflureikna til að vinna úr tölfræðilegum gögnum
  • vinna með samantektir og umraðanir
  • reikna fylgni
  • reikna út líkindi á gefnum atburði í einföldu líkindarúmi
  • setja fram niðurstöður á starfrænu formi.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita fjölbreyttum vinnubrögðum og gagnrýnum viðhorfum við vinnslu tölfræðilegra gagna
  • taka tölfræðiupplýsingum með gagnrýnu hugarfari og vera meðvitaður um misbeitingu tölfræðinnar, s.s. varðandi prósentureikning og myndræna framsetningu
  • miðla upplýsingum á stafrænan hátt.

Námsmat

Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni og/eða próf úr ólíkum efnisþáttum.