Starfsár Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar (NMB) er farið vel af stað og hefur ýmislegt verið á dagskrá á fyrstu vikum annarinnar. Meðal þess sem þegar hefur verið haldið eru nýnemaferð, nýnemaball á Akranesi í samstarfi við FVA og opið hús í skólanum sem var vel sótt.
Í síðustu viku fóru fram kosningar í stjórn nemendafélagsins sem og í ráð og nefndir félagsins og ljóst að öflugur hópur nemenda mun leiða félagsstarfið á komandi skólaári.

Stjórn nemendafélagsins skipa (f.v.)
Hera Björg Steinunnardóttir – Skemmtanastjóri
Guðmundur Þór Eggertsson – Fulltrúi nýnema
Kristján Karl Hallgrímsson – Formaður
Guðmundur Heiðar Eyjólfsson – Gjaldkeri
Ólöf Sesselja Kristófersdóttir – Ritari

Skemmtinefnd (f.v)
Eygló Alda Guðbjörnsdóttir
Hera Björg Steinunnardóttir
Karina Mazurovic (ekki á mynd)

Stjórn Leikfélagsins Kopar (f.v)
Friðrik Rafn Andrason
Elín Ásta Sigurðardóttir
Dagbjört Jónsdóttir
