Breytingar á sóttvarnarreglum taka gildi mánudaginn 7. september (áfram 1 meters reglan en breyting á fjöldatakmörkunum; 200 í stað 100). Þessar breytingar hafa eftirfarandi áhrif í MB:
- Áfram höldum við meters reglunni
- Sumir hópar færast í sínar stofur – skoða Innu og endurhlaða (refresh) stundatöflu
- Allir ganga inn um aðalinngang skólans og innangengt á milli hæða
ALLIR HALDA ÁFRAM PERSÓNULEGUM SÓTTVÖRNUM – þvo hendur, spritta, hósta/hnerra í olnbogabót og halda fjarlægðarmörk, innan sem utan skólans.