Skólastarf hefst á haustönn 2021 með móttöku nýnema miðvikudaginn 18. ágúst klukkan 09:00. Dagurinn hefst með morgunhressingu nýnema og starfsfólks. Að morgunverði loknum fá nýnemar afhentar stundaskrár, aðrar nauðsynlegar upplýsingar um skólastarfið og fá kennslu á helstu kerfi skólans.
Við óskum eftir því að nemendur mæti með tölvurnar sínar og snjalltæki þennan dag.
Eldri nemendur geta nálgast stundatöflurnar sínar á INNU.is föstudaginn 13. ágúst og er einnig velkomið að kíkja til okkar hér í MB. Bókalistar eru þegar komnir inná heimasíðu skólans. Ef einhver óvissa er með bókalistann þá endilega verið í sambandi við okkur. Skólastarf hefst svo samkvæmt stundatöflu fimmtudaginn 19. ágúst.
Fimmtudaginn 19. ágúst kl. 20:00 verður sérstakur kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema. Fundurinn verður í stofu 100.
Allar nánari upplýsingar um skólastarfið er að finna á heimasíðu skólans.