Í dag mánudaginn 16. ágúst, var móttaka nýnema hér í MB, dagurinn gekk ljómandi vel og afskaplega gaman að sjá alla glaða, spennta og pínu stressaða hér í dag. Kennsla hefst svo á mánudaginn klukkan 09:00.
Það er að mörgu að hyggja við upphaf skóla og ekki síst hjá nýnemum. Það er mikilvægt að allir nemendur og foreldrar/forráðamenn kynni sé reglur, stoðþjónustu, og allt það sem er í boði í nýjum skóla.
Við í MB leggjum mikla áherslu á góð samskipti og vináttu og slíkt gengur best ef allir hlíta sömu reglum og sýna hver öðrum virðingu. Vellíðan í skóla er grundvöllur fyrir góðum árangri og framförum í námi. Leggjum áherslu á mikilvægi þess að að skóli og ástundun náms sé í fyrsta sæti, sýnum metnað í námi og gerum alltaf betur!
Hér að neðan eru svo nokkur atriði sem vert er að hafa í huga við upphaf skóla en ég vil líka hvetja ykkur öll til að vera í sambandi við okkur á skrifstofu skólans ef eitthvað er sem þið viljið spurja um eða eruð óviss með, til þess erum við!
Mötuneyti
Hægt er að skrá sig í mat í mötuneyti skólans og hvetjum við alla til að ganga frá skráningu sem allra fyrst. Hægt er að velja sér hvaða daga er verið í mat en við vissulega mælum með að vera í mat alla daga alla mánuði fram á vor, enda maturinn góður, hollur og á frábæru verði. Sjá upplýsingar hér.
Matseðill: https://menntaborg.is/thjonusta/matsedill-manadarins/
Verðskrá: https://menntaborg.is/thjonusta/gjaldskra/
Stoðþjónusta
Elín Kristjánsdóttir námsráðgjafi
- Tímapöntun á skrifstofu eða í tölvupósti. Sjá nánar hér: https://menntaborg.is/thjonusta/namsragjafi/
Guðríður Ringsted skólahjúkrunarfræðingur
- Hún er með viðveru í skólanum annan hvern fimmtudag Tímapantanir eru á netfanginu gudridur.ringsted@hve.is
Sálfræðiþjónusta
- Sjá nánar hér: https://menntaborg.is/thjonusta/salfraedithjonusta/
Skólareglur
Það er mikilvægt fyrir alla að kynna sér skólareglur í MB. Hér erum við öll jöfn og förum eftir reglum til að tryggja góð samskipti.
Reglur um skólasókn.
https://menntaborg.is/namid/skolasokn/
Skólareglur
https://menntaborg.is/namid/skolareglur/
Verkefnaskil
https://menntaborg.is/namid/verkefnavinna-og-verkefnaskil/
Við bendum á að stundaskrár eru aðgengilegar á INNU, þar má sjá nöfn áfanga sem nemandi er skráður í. Ef spurningar vakna um að bæta við sig áföngum eða skrá sig úr er bent á að hafa samband við Lilju S. Ólafsdóttur aðstoðarskólameistara.
Bókalisti liggur hér (nöfn áfanga má sjá í INNU)