Kosningar í stjórn Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir skólaárið 2026 – 2027 fóru fram nýlega. Nýju stjórnina skipa þau Kristján Karl Hallgrímsson formaður, Ólöf Sesselja Kristófersdóttir ritari, Hera Björg Steinunnardóttir skemmtanastjóri og Guðmundur Heiðar Eyjólfsson gjaldkeri. Í haust verður svo kosið um einn meðstjórnanda úr hópi nýnema. Við óskum nýrri stjórn innilega til hamingju með kjörið og hlökkum til samstarfsins.
