Sálfræðiþjónusta

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Menntaskóli Borgarfjarðar og Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands hafa endurnýjað samstarf sitt um stuðning við nemendur í MB. Samningurinn felur í sér endurgreiðslu á sálfræðiþjónustu fyrir nemendur sem þurfa á því að halda og er mikilvægur liður í að efla velferð og forvarnir innan skólans. Tilvísun frá náms- og starfsráðgjafa MB veitir nemanda rétt á endurgreiðslu/styrk allt að fjórum sálfræðitímum á skólaárinu. MB greiðir fyrsta tímann og Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands næstu þrjá, að hámarki.
Þessi samningur er okkur mjög mikilvægur og mikill stuðningur við nemendur og erum við afar þakklát Stéttarfélagi Vesturlands fyrir hann.
Í dag var samningurinn endurnýjaður til tveggja ára og á myndinni eru þau Silja Eyrún Steingrímsdóttir, formaður Stéttarfélag Vesturlands, Elín Kristjánsdóttir, náms- og starfsráðgjafi og Bragi Þór Svavarsson skólameistari.