Opnað verður fyrir innritun á vorönn 2027 þann 1. nóvember. Þeir sem óska eftir skólagöngu sækja um í gegnum innritun.is Nánari upplýsingar um skráningu gefur skrifstofa skólans í síma 433-7700
Fjölbreytt lokaverkefni útskriftarefna
Í síðustu viku var haldin málstofa í áfanganum Lokaverkefni, þar sem útskriftarnemendur kynntu rannsóknarspurningar sínar og fyrstu skref í vinnu við lokaverkefni sín. Í áfanganum vinna nemendur annað hvort að heimildaritgerð eða rannsókn á afmörkuðu viðfangsefni. Markmið áfangans er að efla akademísk vinnubrögð og veita nemendum reynslu af öflun og meðferð heimilda, mótun rannsóknarspurningar, fræðilegum skrifum, gagnrýninni hugsun og framsetningu …
Forseti Íslands bauð fulltrúum framhaldsskólanna á fund
Forseti Íslands Halla Tómasdóttir, bauð fulltrúum stjórnenda í framhaldsskólum á fund föstudaginn 11. september til að hefja verkefnið „Samtal“ sem áformað er að efna ti í október í tengslum við 40 ára afmæli leiðtogafundar í Höfða árið 1986. Fyrir hádegi hittust skólastjórnendur á Teams fundi þar sem Halldóra Lóa Þorvalsdóttir mætti fyrir hönd skólans en efti hádegi bauð forsetinn fulltrúum …
Kjör í nefndir og ráð á vegum Nemendafélagsins (NFB)
Starfsár Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar (NMB) er farið vel af stað og hefur ýmislegt verið á dagskrá á fyrstu vikum annarinnar. Meðal þess sem þegar hefur verið haldið eru nýnemaferð, nýnemaball á Akranesi í samstarfi við FVA og opið hús í skólanum sem var vel sótt. Í síðustu viku fóru fram kosningar í stjórn nemendafélagsins sem og í ráð og nefndir …



