Boðað er til aðalfundar Menntaskóla Borgarfjarðar ehf. miðvikudaginn 3. júní nk. kl. 12:00.
Staður: Menntaskóli Borgarfjarðar, Borgarbraut 54, Borgarnesi
Fundarefni, venjuleg aðalfundarstörf
Dagskrá samkvæmt grein 3.2 í samþykktum félagsins
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur lagður fram til samþykktar
- Kjósa skal stjórn félagsins og endurskoðanda eða skoðunarmenn (á síðasta aðalfundi, haustið 2019, var ný stjórn kosin til næstu þriggja ára)
- Kosning formanns og varaformanns stjórnar félagsins úr hópi kjörinna aðalstjórnarmanna
- Ákvörðun um hvernig skuli fara með hagnað eða tap félagsins og framlög í varasjóð
- Ákvörðun um greiðslur til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu
- Önnur mál löglega borin upp
- a) Tillögur að breytingum á samþykktum félagsins sem liggja frammi á skrifstofu félagsins ásamt ársreikningi fram að aðalfundi