 Leiklistarfélag  Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýndi á föstudaginn síðasta  Mannsins myrku hlið sem er leikriti með söngvum.
Leiklistarfélag  Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýndi á föstudaginn síðasta  Mannsins myrku hlið sem er leikriti með söngvum.
Mannsins myrka hlið er leikrit byggt á plötunni Dark side of the moon  með Pink Floyd.
Þetta er frumsamið leikrit samið af Bjarti Guðmundssyni og leikhópnum.   Leikstjóri verksins er Bjartur Guðmundsson.
Pælingin er að setja upp  leiksýningu sem snertir fólk. Þ.e. að það fer út af sýningunni og  hugsar hvernig það tengir þetta við sjálfan sig og fólki virkilega muni  eftir sýningunni og sýningin myndi þannig skilja einhvað eftir sig.  Við  erum dálítið að benda á þá hluti í okkar samfélagi sem eru okkur svo  eðlilegir og við pælum lítið í en hafa samt svo mikil áhrif á það  hvernig við högum okkur og það hvernig lífið okkar er. Eins og platan þá  fjallar leikritið um það hvað það er sem lætur fólk í  rauninni klikkast. Ekki endilega verða geðveikt heldur hvaða hlutir eru  svo firrtir í samfélaginu að það ýtir því yfir brúnna. Og við ætlum að  skoða þetta svolítið út frá leikhópnum, hvaða hlutir það eru í okkar  samfélagi sem eru svo firrtir að þeir fá mann til að fara yfir mörkin.  Þetta er frábær tónlist, Tónlistin lætur mann fara í svakalega  rússíbanareið þegar maður hlustar á hana. Þá mun þessi sýning eiga  erindi við fólk í dag og þetta verður svolítil ádeila. Við munum setja  líka fram ýmsar hugmyndir okkar um samfélagi. Þetta verk hefur ekki  samkvæmt okkar bestu heimildum verið sett upp neinss taðar annarsstaðar í  heiminum og gerir þar með uppsetningu okkar mjög áhugaverða.
Síðustu   vikuna fyrir frumsýninguna þurfti hópurinn að leggja mikið á sig þar  sem margt átti eftir að klára fyrir frumsýningu. En það var þessi virði  því frumsýningin gekk framar öllum vonum og ætlaði þakið að rifna af  húsinu þegar sýningunni lauk og stóðu áhorfendur upp og hylltu  aðstandendur sýningarinnar. Síðan voru tvær sýningar á sunnudeginum sem  tókust mjög vel og var gífurlega mikið fagnað í lok beggja sýninga!
Næstu sýningar eru : 
4. Sýning 31. mars fimmtudagur 20:00
5.   Sýning 2. apríl laugardagur 22:00 Power-sýning
6. Sýning 4. apríl  mánudagur 19:00
Miðapantanir í s: 691 8981 eða 848 8668