
Byggingin er á lóðinni Borgarbraut 63 en um er að ræða neðstu hæð og þar verða 12 íbúðir fyrir nemendur. Stærð íbúðanna er á bilinu 20 -26 fermetrar og er pláss fyrir 18 nemendur, Á annarri til fjórðu hæð eru svo íbúðir fyrir 60 ára og eldri.
Sveitarfélagið Borgarbyggð kemur myndarlega að verkefninu með aukið stofnfé í þetta nýja félag ásamt Menntaskóla Borgarfjarðar. Verkefnið er einnig að hluta fjármagnað með lánum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Fyrir liggur að aðsókn við Menntaskóla Borgarfjarðar hefur farið vaxandi síðustu ár og eftirspurn eftir húsnæði verið langt umfram það sem núverandi aðstaða hefur boðið upp á. Þessi nýja bygging mun því koma til með að skipta mjög miklu máli fyrir Menntaskóla Borgarfjarðar og áframhaldandi stækkun hans.
Undir samninginn skrifuðu fyrir hönd Nemendagarða MB hses Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, formaður stjórnar og Bragi Þór Svavarsson skólameistari MB. Fyrir hönd Brákarhlíðar fasteignafélags skrifuðu Sigrún Ólafsdóttir stjórnarmaður og Inga Dóra Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Brákarhlíðar.