Kosningar í stjórn Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir skólaárið 2024 – 2025 fóru fram á vordögum. Nýju stjórnina skipa þau Ernir Daði Sigurðsson formaður, Jónas Bjarki Reynisson gjaldkeri, Eiríkur Frímann Jónsson skemmtanastjóri og Marta Lukka Magnúsdóttir ritari. Nú í skólabyrjun var svo kosið um einn meðstjórnanda úr hópi nýnema – Grétar Jónatan Pálmason. Við óskum nýrri stjórn innilega til hamingju með kjörið og hlökkum til samstarfsins.
